Vinnuaðferðir :
Prjón og hekl: Nemendur læra ýmist tengiputtaprjón, fingraprjón, nota prjónahring, eða prjóna á tvo sokkaprjóna garðaprjón, eða e.t.v. á hringprjón, eða læra grunn í hekli. Einnig fá þeir að prófa prjónavélar frá 4, 22 og 46 lykkja.
Aðalvinnuaðferðin í 4.bekk er s.s. prjón og hekl, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda, t.d. í valverkefnum. Valverkefni eru oftast upprifjun vinnuaðferða fyrri ára.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Textílnmennt er kennd 2x í viku í 5 Lotum (lotuhóp með 3. bekk), í 2 hópum, í 80.mín, í 12 -13 skipti.
Gulue, lota 1
Grænn, lota 2
Verkefnin eru:
Unnin eru lítil einstaklings prjónaverkefni þar sem þau velja sitt garn og prjónastykki (prjónadýr, leikföng o.s.frv.), og ef til vill taka þau einnig þátt í samvinnuverkefni. Jafnframt ef áhugi er fyrir hendi er prjónaklúbbur stofnaður og huggulegheit tengd honum höfð í hávegum. Þega nemendur hafa náð smá tökum á vinnuaðferðunum eru þeir hvattir til að vinna heima.
Valverkefni: þegar tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendu
Hvassómetið í puttaprjóni
Hvassómet ? Guinnessmet?
Prjónahringur
Prjónað á sokkaprjóna
Hekla
Prjónavél
Auka og valverkefni