Vinnuaðferðir:
Þæfing: nemendur kynnast blautþæfingu og þurkarinn hjálpar okkur yfir erfiðasta hjallinn í þæfingunni.
Þráðurinn þræddur, skreyting og snúran: nemandi lærir að vinda snúru, þræða þráð á grófa nál og handsauma frjáls útsaumsspor.
Kennsluaðferðir ofl.
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Lögð er áhersla á sögur, leiki, hringleiki og vísur sem tengjast texíl.
Textílnmennt er kennd í 80 mín, 2x í viku, í 7 lotum yfir árið, hver hópur í um 4. vikur í ca.10 skipti.
Verkefnin eru:
1. Þau vinna eitt til tvö verkefni úr ullarkembu og er hún aðalhráefni vetrarins. Ulllarkemban er þæfð ( e.t.v. með smá hjálp þurkarans og/eða nælonsokks) og er verkefnið e.t.v. skreytt með þeirra útsaum, perlum eða öðru.
2. Bandið/ garnið: Þau vinna grunnaðferðir eins og búa til snúruband (armband eða leikspotta), binda og leika með bandspottana.
3. Að lokum ef tími gefst eru unnin ýmis lítil aukaverkefni. t.d. læra að leika með snúruband sem „fuglafit“( einn elsta leik mannsins).
Fuglafit
...stundum byrjum við daginn á fuglafitsleikjum og æfingum!
Þæfingin
Snúrurnar ...
Sungum og dönsuðum hringleikinn "Vindum, vindum vefjum band" (í stílfræði útgáfu)
Faðmar mældir!
Tjaldað með stóru snúruböndunum