Vinnuaðferðir :
Vefnaður: Nemandi lærir grunnhandtök og hugtök í vefnaði.
Aðalvinnuaðferðin í 3.bekk er s.s. vefnaður, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda, t.d. í valverkefnum.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Lögð er áhersla á sögur, leiki, sem tengjast texíl. Textílnmennt er kennd í 80 mín, í 5 lotum/hópum hver í 12-13 skipti.
Verkefnin eru:
1. Sem sagt það er lögð áhersla á vefnað og hvernig efni er saumað saman í höndunum. Unnið er lítið einstaklings vefnaðarverkefni. Aðferðir við að búa til klæði/efni eru skoðuð. Spurningar eins og “Hvernig eru efni gerð?”, “Hvaða aðferð er notuð til að búa til gallabuxnaefnið eða jogginggallaefnið, og eru þau eins?”.
2. Valverkefni: Ef að tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendum.