Vinnuaðferðir :
Prjón og hekl: Nemendur læra ýmist tengiputtaprjón, fingraprjón, nota prjónahring, eða prjóna á tvo sokkaprjóna garðaprjón, eða e.t.v. á hringprjón, eða læra grunn í hekli. Einnig fá þeir að prófa prjónavélar frá 4, 22 og 46 lykkja. .
Aðalvinnuaðferðin í 4.bekk er s.s. prjón og hekl, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda, t.d. í valverkefnum.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Textílnmennt er kennd 3x í viku í 6 Lotum (lotuhóp með 5. bekk, 4 fyrir áramót og 5. b. eftir áramót), í 3 hópum, í 80.mín, í skipti.
Venus, lota 1 23. ágúst - 27.sept.
Mars, lota 2 2. okt. - 14.nóv.
Júpiter, lota 3 15.nóv. - 8.jan.
Verkefnin eru:
Unnin eru lítil einstaklings prjónaverkefni þar sem þau velja sitt garn og prjónastykki (prjónadýr, leikföng o.s.frv.), og ef til vill taka þau einnig þátt í samvinnuverkefni. Jafnframt ef áhugi er fyrir hendi er prjónaklúbbur stofnaður og huggulegheit tengd honum höfð í hávegum. Þega nemendur hafa náð smá tökum á vinnuaðferðunum eru þeir hvattir til að vinna heima.
Valverkefni: þegar tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendum.
Pinterest “Textíl í Hvassó” ( hugmyndabanki kennara og nemenda )
Heklað
Prjónað á sokkaprjóna , hringprjón
Prjónahringur
Fingraprjónað
Prjónavél
Allskonar val og lítil sjálfstæð verkefni