INNKAUP OG
EFNIVIÐUR

Íslensk fyrirtæki sem selja  efnivið fyrir tækin

Enso - vínyl filmur
Handverkshúsið - viður
Fást- plexígler
A4 - karton og pappír
Litir og föndur -  karton, pappír felt o.fl
3D verk - filament í þrívíddarprentarana
Íhlutir - rafrásarbúnaður
Media - ýmis konar efniviður

Efniviður fyrir laserskera:

Pappi um 3mm -
safnið saman öllum umbúðum og pappakössum til að nota í pródótýpur og verkefni með nemendum- nánast ókeypis efniviður og gott að nota í byrjendaverkefni til þess að vera ekki að eyða dýrum efnivið

Krossviður 3mm-6mm -
Handverkshúsið er með besta krossviðinn - hægt að biðja þá um að skera niður í 30x50cm plötur - eiga ekki 3mm núna
https://media.is/products/plywood-panels
https://kitronik.co.uk/collections/plywood/birch-laser-plywood 

Plexígler 3mm- 6mm
Fást - Með alls konar liti og týpur og  þeir geta skorðið niður í 30x50cm plötur
Handverkshúsið með smá úrval af plexígleri
https://kitronik.co.uk/collections/perspex-acrylic-sheets 

Textílefni
Hægt að skera  og grafa í leður, gallaefni, felt, satín o.fl. gott að nota t.d gamla leðurjakka eða búta sem nýtast ekki í neitt annað, annars hægt að fá textíl efni hjá Vogue, Föndru eða Lín ehf heildverslun.
ATH: Það má ekki nota PU eða PVC efni í laserskerann  sem er t.d í flestum gervileðrum og vínyl efnum.

Korkur og stimplaefni
Media er með stimplaefni og  annan efnivið fyrir  laserskerann

Hugsum út fyrir kassann:
https://www.ikea.is/is/products/heimaskrifstofan/smahirslur/skipulagsvorur/susig-skrifbordsmotta-art-90457486 -
https://www.ikea.is/is/products/heimaskrifstofan/smahirslur/skipulagsvorur/knuff-timaritahirsla-2-i-setti-art-20562513 - finn þessar, nema úr krossvið mjög oft í góða hirðinum eða hertex á 200 kall sem er hægt að taka í sundur og nota

https://www.ikea.is/is/products/matreidsla-og-bordhald/hnifar-og-skurdbretti/skurdarbretti/aptitlig-skurdarbretti-art-60233426 - gaman að grafa í t.d skurðarbretti

Efniviður fyrir vínylskera / Cricut:

Vínyllímmiðar
Enso er með fjölbreytt úrval af límmiða filmum sem er hægt að biðja um að skera í 30cm breidd

Fatalímmiðar
Enso er með fjölbreytt úrval af fatalímmiða sem er hægt að biðja um að skera í 30cm breidd

Karton og pappír
A4 eða Penninn Eymundsson

Felt og textílefni
litir og föndur

Endurunninn efniviður
þunnar plastmöppur, umbúðir utan af matvælum eins of cerios kassar, skinkubréf.