Þróunarverkefnið um færanlegar sköpunar- og tæknismiðjur, fjölbreytta vinnu og skapandi skil hefur það að markmiði að styðja við hugarfar vaxtar, sköpunarhæfni og lausnamiðaða hugsun. Mikilvægt er að hafa í huga að hönnun, sköpun og stafræn tækni á ekki bara heima í sérstökum kennslustundum, heldur í öllu námi.
Þátttaka í þróunarverkefninu skólaárið 2023-2024 felur í sér að starfsstaðurinn fær afnot af veglegri, færanlegri sköpunar- og tæknismiðju með margvíslegum búnaði ásamt vönduðu og verðlaunuðu námsefni sem kallast Maker’s Red Box. Innleiðing og undirbúningur hefst vorið 2023.
Verkefnið er styrkt af Sprotasjóði og er hluti af Stafrænni grósku og tengist stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar.
Lærdómssamfélag
Kennsluráðgjafar Mixtúru styðja við innleiðingu á verkefninu. Á vorönn 2023 senda starfsstaðirnir þrjá til fimm starfsmenn á námskeið þar sem farið verður yfir notkun tækja og námsefnið. Þátttakendur í þróunarverkefninu verða hluti af lærdómssamfélagi um fjölbreytta og skapandi vinnu í skóla- og frístundastarfi. Hópurinn heldur áfram að hittast skólaárið 2023-2024, styðja hvert annað, deila reynslu og miðla hvernig gengur.
Lögð er áhersla á að þátttakendur miðli möguleikum til samstarfsfólks svo hægt sé að nýta færanlegu sköpunar- og tæknismiðjuna á fjölbreyttan hátt meðan hún er í húsi.
Fræðsla og vinnustofur vorönn 2024
Þriðjudagurinn 23. janúar kl. 14:00-16:00
Miðvikudagurinn 7. febrúar kl. 15:00-16:00 (FabLabaro: Bringin the Fab Lab Experience to School - opið öllu áhugasömu skólafólki)
Miðvikudagurinn 8. febrúar kl. 09:00-16:00
Mánudagurinn 4. mars kl. 14:00-16:00
Fimmtudagurinn 11. apríl kl. 13:00-17:00 (Menntabúðir: Stafræn tækni í skapandi skólastarfi - opið öllu áhugasömu skólafólki)
Fræðsla og vinnustofur haustönn 2023
23. september kl. 14:00-16:00
12. október kl. 14:00-16:00
23. nóvember kl. 14:00-16:00
Undirbúningur starfsfólks vorönn 2023
Fimmtudagurinn 9. mars kl. 13:00-16:00
Fimmtudagurinn 27. mars kl. 13:00-16:00
Þriðjudagurinn 18. apríl kl. 13:00-16:00
Miðvikudagurinn 3. maí kl. 13:00-16:00
Miðvikudagurinn 24. maí kl. 13:00-16:00
Færanleg sköpunar- og tæknismiðja
Þátttaka í þróunarverkefninu felur í sér að starfsstaðurinn fær afnot af veglegri, færanlegri sköpunar- og tæknismiðju með margvíslegum búnaði :
Laserskeri
Tveir 3D prentarar
3D skanni
3D plast
Verkfæri og efniviður til lóðunar
Microbit örtölvur
Cricut fjölskeri
Cricut hitapressa
Cricut aukahlutir
Bækur
RedBox námsefni
MakeDo skrúfur
Færanlegir vagnar
Maker's Red Box
Maker’s Red Box er námsefni sem í grunninn er 16 vikna námsáætlun sem fylgir ákveðnum söguþræði. Hópur nemenda tekst saman á við margvíslegar áskoranir sem verða á vegi þeirra í sögunni. Í gegnum samvinnu og lausnamiðaða hugsun eru verkefni leyst með fjölbreyttum hætti og eru þrívíddarprentun, laserskurður og forritun hluti af því sem fengist er við.
Námsefnið er fyrir 11 ára og eldri:
Ofurhetjur (Superheroes), þar sem unnið er með sögugerð, sköpun sögupersóna og borðspilagerð
Umhverfisverkfræðingar (Green Engineers), þar sem hópurinn undirbýr og tekur þátt í ferð til Mars
Borg framtíðarinnar (City of the Future), þar sem borgarskipulag framtíðarinnar er viðfangsefnið
Náttúruvá (Global Warning), en þar er farið í heimsreisu til að kynna sér áhrif og afleiðingar loftslagshlýnunar á mismunandi stöðum í heiminum
Umsókn
Með umsókn skuldbindur starfsstaðurinn sig til að:
Nýta færanlegu sköpunar- og tæknismiðjuna markvisst í starfi með börnum og ungmennum.
Tilnefna sérstakan tengilið verkefnisins sem er jafnframt tengiliður við Mixtúru.
Veita tilgreindu starfsfólki svigrúm á vorönn 2023 og skólaárið 2023-2024 til að kynna sér vel búnað færanlegu smiðjunnar, miðla til samstarfsfólks og taka þátt í samráði með öðrum starfsstöðum.
Vinna með Maker's Redbox námsefnið með hópi nemenda.
Skrá notkun á námsefninu og færanlegu sköpunar- og tæknismiðjunni í myndum.
Taka þátt í mati og kynningu á þróunarverkefninu.
Skila námsefninu og færanlegu sköpunar- og tæknismiðjunni til Mixtúru að þróunarverkefninu loknu og ef það er ekki nýtt með markvissum hætti skólaárið 2023-2024.
Glærur frá kynningarfundi:
Með því að taka þátt í þessu spennandi þróunarverkefni gefst einstakt tækifæri til að kynnast, þróa og styðja við mikilvæga hæfni í námi, kennslu og leik.