Dauði ljóðsins

Útgáfudagur 16. október 2022. Þetta er tvískipt ljóðabók. A-hlutinn er með nokkru lífsmarki, ný ljóð og nokkur sem hafa þvælst um fésbók og annars staðar síðustu tvö, þrjú árin eða svo. B-hlutinn er ljóðabálkur í bundnu og óbundnu máli um stöðu ljóðsins og tungumálsins þar sem styttur af skáldum fara á kreik og saga málsins og ljóðformsins fléttast inn í frásagnarljóðin. Dauði ljóðsins er því eins og fyrri bækur fjölbreytt að efni og formi en seinni hlutinn er þetta sérstaka þema.