Starfsáætlun nemenda 2025-2026

Skóladagatalið sýnir þá daga sem nemendur eiga að vera í skólanum, hvaða daga er vikið frá hefðbundnum skóladegi og hvaða daga nemendur eiga frí. Skóladagar eru 180 á níu mánuðum.

Vikulegur kennslutími árganga er:


Skólabyrjun – skólalok
Nemendaviðtöl verða í Egilsstaðaskóla þann 22.ágúst haustið 2025 en ekki skólasetning eins og verið hefur.  Skólaslit vorið 2026 eru þriðjudaginn 9. júní.

Haustþing
Þann 26. september er haustþing. Dagurinn er endurmenntunardagur fyrir kennara og annað starfsfólk og nemendur í fríi og frístund lokuð. 

Jólaleyfi
Jólaleyfi er dagana 20. desember til 1. janúar, 2. janúar starfsdagur og 5. janúar fyrsti kennsludagur eftir jólaleyfi.

Páskaleyfi
Páskaleyfi er dagana 28. mars til og með 6. apríl 2025; 7. apríl er fyrsti kennsludagur eftir páska. 

Haustfrí og vetrarfrí        
Vetrarleyfi á haustönn er fimmtudag 16. október og föstudaginn 17. október. 

Vetrarleyfi á vorönn er 19. og 20. febrúar. 

Starfsdagar 

Starfsdagar að hausti eru 15. - 20. ágúst. Starfsdagar á starfstíma skóla eru 3. nóvember, 21. nóvember, 2. janúar, 9. mars og 24. apríl. Starfsdagar að hausti eru 10. - 12. júní. Á starfsdögum eru nemendur í fríi.

Samstarfsdagar
Samstarfsdagar verða 22. ágúst, 5. nóvember og 20. febrúar 2025. 

Þann 22. ágúst hitta nemendur og foreldrar/ forsjáraðilar umsjónarkennarann sinn. Á starfsdögum í haust senda umsjónarkennarar út upplýsingar um nemendaviðtöl. Foreldar/forsjáraðilar skrá sig í gegnum Mentor. Þá fá nemendur og foreldrar/forsjáraðilar tækifæri til að mynda tengsl við umsjónarkennarana og fleiri sem koma að bekknum. 

Þann 4. nóvember eru hefðbundin samstarfsviðtöl. Umsjónarkennarar senda út upplýsingar um samstarfsdaga til foreldra með góðum fyrirvara og foreldrar skrá sig á þann tíma sem þeim hentar í gegnum Mentor. Foreldrar aðstoða jafnframt nemendur við að fylla út sjálfmat á Mentor sem varðar líðan og nám nemandans. Sjálfsmatið liggur til grundvallar í samstarfsviðtalinu, en jafnframt er námsstaða nemanda til umræðu og þá með tilvísun í hæfnikort nemenda á Mentor.

Þann 10. mars verða nemendastýrð viðtöl. Umsjónarkennararar boða nemendur og forráðamenn í skólann á ákveðnum tíma. Þar fundar nemandinn með foreldrum/forsjáraðilum og fer yfir fyrir fram ákveðna dagskrá sem hann hefur undirbúið undir leiðsögn kennara.

Leiðarljós samstarfsviðtala er að foreldrar/forsjáraðilar og kennari eru teymi sem vinna að velferð barnsins. Áhrif foreldra/forsjáraðiila á nám og líðan barna eru óumdeild og samstarfsviðtöl eiga að tryggja að allir foreldrar/forsjáraðiliar eigi hlutdeild í skólagöngu barna sinna. Þau eiga jafnframt að stuðla að því að nemendur læri að taka ábyrgð á eigin námi með því að skipuleggja það í samráði við kennara og foreldra/forsjáraðila.  Að  jafnaði eru viðtölin um 15-20  mínútna löng.  

Göngudagur
Göngudagur skólans er 2. september.  Á göngudaginn er farið í gönguferðir um hið fagra Fljótsdalshérað. Gönguleiðirnar eru mislangar allt frá 3 km upp í 16 km. Göngudagur skólans er upprofsdagur. 

Gönguleiðir:
1. bekkur               Sigfúsarlundur
2. bekkur               Klofasteinn
3. bekkur               Egilsstaðavík
4. bekkur               Hrafnafell
5. bekkur               Rauðshaugur
6. bekkur               Fardagafoss
7. bekkur                 Valtýshellir
8. bekkur                 Bjargselsbotnar
9. bekkur               Stapavík
10. bekkur             Stórurð

BRAS – barnamenningarhátíð á Austurlandi.
BRAS er menningarhátíð þar sem börnum er gefið tækifæri til að skapa og upplifa listir í víðasta samhengi. Hátíðin var haldin í fyrsta skipti í september 2018.

Menningarhátíðin stendur yfir í september og október. Heimasíðan hátíðarinnar er www.bras.is

Vinadagurinn - vinabekkir
Í nóvember eru vinadagar.  Markmiðið með vinadögunum er að styrkja vinatengsl meðal nemenda með samveru vinabekkja. Í Egilsstaðaskóla eru árgangar paraðir saman og helst samstarf þeirra í fimm ár. Eða þar til eldri árgangurinn útskrifast og sá yngri tekur að sér yngsta árgang skólans. Verkefnin, sem vinabekkirnir vinna saman, eru sniðin að aldri þeirra árganga sem hittast. Vinadagarnir eru hluti af því að gera baráttudegi gegn einelti hátt undir höfði, sem er 8. nóvember.

Péturshlaup
Péturshlaupið er minningarhlaup um Pétur Kjerúlf Þorvarðarson fyrrum nemanda skólans sem lést vorið 2006. Pétur var mikill íþróttamaður og hefur hlaupið verið fastur liður í starfi Egilsstaðaskóla frá því haustið 2006. Nemendur í 5.-10.bekk hlaupa mislanga hringi eftir aldri. Péturshlaupið er haldið í október og er hluti af tengsladögum 6. - 10. október.

Umsjónardagar
Þann 10. september, 25. nóvember, 19. janúar og 12. mars eru umsjónardagar hjá 8. - 10. bekk. Umsjónardagar eru uppbrotsdagar þar sem umsjónarteymi bekkjarins vinnur liðsheildarvinnu með bekkinn til að styrkja jákvæðan anda í hópnu og efla þannig forvarnir gegn einelti og samskiptavanda. Eins er markmiðið að vinna með verkefni sem bæta traust og virðingu því slíkt er grunnur að samheldnum og sterkum hópum. Unnið er að því að ná fram jákvæðum bekkjaranda og bekkjarstjórnun. Unnið er meðal annars með félagsfærni, vináttuþjálfun, samvinnuleiki og hópefli. 

Þann 10. nóvember og 19. janúar verða umsjónardagarnir sameiginlegir hjá öllum bekkjum. 

Tengsladagar
Vikuna 6. - 10. október eru tengsladagar. Þá verða viðburðir sem hafa það að markmiði að tengja nemendur og starfsfólk saman í fjölbreyttum verkefnum alla vikuna. Leitast er við að draga fram mikilvægi jákvæðra tengsla sem undirstöðu árangursríks náms og farsældar. Nemendaráð og starfsþróunarhópurinn Heillasporin hafa veg og vanda af skipulagi daganna. Í Heillasporum er mikil áhersla á vellíðan og tengslamyndum. 

Útivistardagar
Útivistardagur á miðstigi og á elsta stigi er 3. mars. Þá er fara þeir nemendur sem kjósa í skíðaferð í Stafdal og aðrir taka þátt í skipulagðri útivist. Útivistardagur yngsta stigs er 10. apríl. Þá taka nemendur í 1. - 4. bekk þátt í skipulagðri útivist. 

Árshátíðir
Árshátíðir skólans eru haldnar í fernu lagi. Að hausti er árshátíð elsta stigs haldin sem hluti af valgreinum.
Árshátíð 5. - 7. bekkjar er í febrúar og þá eru sett á svið ýmis þekkt leikrit.
Árshátíðir á yngsta stigi eru tvískiptar; 1. og 2. bekkur sýna saman og 3. og 4. bekkur saman og eru haldnar í mars.
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum er samstarfsaðili skólans við árshátíðarvinnu, bæði með tónlistarflutningi og æfingar söngatriða.

Dagsetningar árshátíða eru sem hér segir:

Elsta stig (8.-10. bekkur): 13. nóvember
Miðstig (5.-7. bekkur): 5. febrúar
3. og 4. bekkur: 5. mars
1. og 2. bekkur: 19. mars

Árhátíðardagurinn er tvöfaldur skóladagur fyrir það stig/bekki sem heldur árshátíðina hverju sinni. Daginn fyrir árshátíðið er uppbrotdagur, bleikur dagur, sem nýttur er til undirbúnings og þá fer generalprufan fram. 

Jólastund foreldrafélagsins
Jólastund foreldrafélagsins er 27. nóvember. Foreldrum/forsjáraðilum og nemendum er boðið að koma í skólann og eiga notalega stund þar sem er hægt er að taka þátt í föndri og matargerð í smáum stíl. Nemendur í 9.bekk sjá um kaffisölu á jólastundinni.

Jólaskemmtun
Jólaskemmtun skólans er fyrir nemendur í 7.-10. bekk að kvöldi  18. desember. Skemmtun er í skóla og jólaball í félagsmiðstöðinni Nýung á eftir. Ekki er kennsla hjá nemendum í 7.-10. bekk föstudaginn 19. desember.

Jólaskemmtanir fyrir nemendur í 1.-6.bekk eru fyrir hádegi föstudaginn 19. desember og er þetta skertur skóladagur. Á jólaskemmtuninni flytur 6. bekkur jólasögu og gengið er í kringum jólatré. 

Upplestrarkeppnin -stóra og litla
Egilsstaðaskóli tekur þátt í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk og Litlu upplestrarkeppninni í 4. bekk.

Stóra upplestrarkeppnin byggir á tveimur megin hlutum, ræktunarhluta og hátíðarhluta. Í ræktunarhlutanum, sem fer fram í skólanum, er lögð áhersla á að æfa upplestur og framburð. Í lok ræktunarhlutans fer fram skólahátíð í upplestri þar sem allir nemendur lesa. Fulltrúar skólans lesa síðan á Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Litla upplestrarkeppnin fer fram inn í skólanum og byggir á sömu hugmyndum og Stóra upplestrarkeppnin. Við lok litlu upplestrarkeppninnar lesa flytja nemendur dagskrá með upplestri fyrir foreldra. 

Öskudagur
Öskudagurinn 18. febrúar er samstarfsverkefni skólans og foreldrafélags skólans. Vinabekkir hittast á öskudag og að lokinni samverustund taka yngstu árgangar skólans þátt í öskudagsskemmtun í íþrótthúsinu. Öskudagur er skertur skóladagur.

Opið hús
Þann 22. október og 22. apríl er opið hús í skólanum. Dagarnir eru fyrst og fremst táknrænir fyrir því að foreldrar/forsjáraðilar eru ávallt velkomin í heimsókn. Þessa tvo daga verður öllum foreldrum/forsjáraðilum boðið í heimsókn í kennslustundir. Þann 22. apríl er um skertur dagur vegna ferðalags starfsfólks. 

Héraðsleikar
Þann 15. maí eru haldnir Héraðsleikar í grunnskólum Í Múlaþingi. Þennan dag hittast nemendur skólanna, skipt eftir stigum, í skólunum og fara í gegnum stöðvar með ýmsum verkefnum. Héraðsmót er upprofsdagur.

Forvarnardagur
Samhliða Héraðsmótinu er haldinn forvarnardagur fyrir elsta stig. Skipulagið er í höndum félagsmiðstöðvarinnar Nýungar og forvarnarfulltrúa sveitarfélagsins. Skipulagið er ekki alltaf eins en oftast eru fyrirlestrar, skapandi vinna og stöðvar. Forvarnardagurinn er upprofsdagur. 

Vordagur
Síðastu tveir kennsludagur skólaársins eru kallaðir vordagar. Að þessu sinni eru það 5. og 8. júní. Dagarnir eru skertir skóladagar. Skipulag vordags er mismunandi ár frá ári og er skipulag í höndum umsjónarkennara hvers árgangs.

Vettvangsferðir
Vettvangsferðir eru fastir liðir í starfsemi skólans. Farið er í ýmsar styttri ferðir í nágrenni skólans og umhverfið nýtt til náms og kennslu. Ekki er um fastar dagsetningar að ræða í öllum tilfellum, en reynt að skipuleggja ferðirnar eftir veðri og aðstæðum hverju sinni. Nemendur og foreldrar/forsjáraðilar fá upplýsingar um fyrirhuguð ferðalög/vettvangsferðir tímanlega.

Helstu vettvangsferðir nemenda eru:
3. bekkur: Ferð að sjávarsíðunni í maí.
5. bekkur: Ferð í Fljótsdal – Skriðuklaustur og Snæfellsstofu í maí.
7. bekkur: Ferð í Skaftfell Seyðisfirði og þátttaka í fræðsluverkefni á vegum Skaftfells, miðstöðvar um sjónlistir á Austurlandi. Í sumum tilfellum koma starfsmenn Skaftfells í Egilsstaðaskóla.

7. bekkur: Náttúruskoðunarferð.  Farið er á Borgarfjörð eystri og þar skoðuð ýmis undur náttúrunnar.  Áætluð ferð er í maí.

9. bekkur: Ferð á Stríðsminjasafnið á Reyðarfirði og í Fjarðabyggð. Ferðin er í tenglum við námsefni 9.bekkjar um stríðsárin. Ferðin er farin í maí. 

10.bekkur fer í skólaferðalag að vori. Undanfarin ár hefur hópurinn farið útfyrir Austurland, gist í tvær nætur ásamt umsjónarkennurum og gert ýmislegt saman. Markmiðið með ferðinni er að nemendur eigi góðar stundir saman og með umsjónarkennurum við lok grunnskólans.

Ef ferðalag á vegum skólans stendur yfir nótt þarf skriflegt leyfi foreldra/forsjáraðila. Um reglur í ferðum á vegum skólans gilda skólareglur og aðrar reglur sem kynntar eru nemendum og foreldrum sérstaklega.

Þann 21. maí er gert ráð fyrir fyrir öllum þeim ferðum sem fara á máimánuði og því er dagurinn uppbrotsdagur. 

Próf
Í Egilsstaðaskóla eru ekki formlegir prófadagar, enda námsmat hluti af daglegu starfi.