Í þessari lotu lærum við um orkuna í ólíkum myndum. Þú munt læra um krafta og hreyfingu, afl, varma og bylgjur.
Hæfniviðmið við lok 10.bekkjar.
Við lok lotunnar getur nemandi:
Útskýrt orkubreytingar og varðveislu orku í náttúru og tækni.
Lýst hvernig raforka er framleidd, flutt og nýtt og hvaða áhrif það hefur á lífríkið.
Útskýrt varmaflutning og muninn á hita og varmorku.
Beitt hugtökum um stöðurafmagn og sýnt fram á virkni rafsegulmagns.
Teiknað og tengt einfaldar rafrásir og mælt straum og spennu.
Lýst eiginleikum bylgna (hljóð og ljós) og rætt um gagnsemi og áhættu þeirra.
Beitt kraftalögmálum til að lýsa hreyfingu og jafnvægi.
Mælt massa og rúmmál til að reikna eðlismassa og útskýrt muninn á massa og þyngd.
Sjálfspróf:
1.1, 1.2, 1.3
4.1, 4.2, 4.3
Hópverkefni:
Sjálfbærni og umhverfisáhrif ólíkra orkugjafa.