Síðustu vikur hafa nemendur í 7. bekk undirbúið sig fyrir Stóru upplestrarkeppninni sem er árlegur viðburður í skólastarfinu. Umsjónarkennarnir Elín og Mjöll hafa unnið markvisst með nemendum ásamt Eddu Björt sérkennara. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Mánudaginn 16. mars tóku 15 nemendur þátt í skólakeppninni í Hvassó. Keppendur stóðu sig frábærlega og höfðu greinilega æft sig vel, bæði í skólanum og heima. Heiða Lára Eggertsdóttir, umsjónarkennari í 3.bekk, Margrét Sigrún Höskuldsdóttir, rithöfundur og Svana Friðriksdóttir, fyrrverandi kennari í Hvassaleitisskóla, fengu það erfiða verkefni að velja tvo fulltrúa sem kepptu í lokakeppninni við aðra skóla úr hverfinu.
Sigurvegarar voru Matthías Snær Bjarnason og Norma Rós Steindórsdóttir en auk þeirra var Sóley Stella Ásbergsdóttir valin sem varamaður. Matthías og Norma tóku svo þátt í lokahátíð Skóla- og frstundasviðs Norðurmiðstöðvar í Grensáskirkju fyrir hönd skólans, miðvikudaginn 25. mars í Grensáskirkju.