Réttindaráð Hvassaleitisskóla hefur fundað nokkuð reglulega frá því í nóvember. Þessi öflugi hópur nemenda vinnur nú að því að setja upp Réttindaráðsvegg inni á bókasafni skólans þar sem upplýsingum um réttindi barna er miðlað á skapandi hátt. Jafnframt verður þar sérstakur hugmyndakassi fyrir nemendur skólans og hvetjum alla nemendur til að nýta þetta flotta tækifæri til láta í sér heyra með því að setja sínar tillögur í kassann. Einnig vinnur réttindaráð að gerð aðgerðaráætlunar. Það er dásamlegt að sjá hversu virkir þátttakendur börnin eru og hve mikinn áhuga þau sýna því að gera gott skólastarf enn betra og réttlátara.