6. bekkur fékk að heimsækja Húsdýragarðinn og aðstoða við að sinna dýrunum. Þau gáfu skepnum, mokuðu stíur og bása og fræddust um landbúnaðarstörf almennt. Nemendur gáfu námskeiðinu toppeinkunn og fóru glaðir, fróðir og svolítið þreyttir aftur upp í Hvassó í hádegismat.