Þátttaka í Páskabingói foreldrafélagsins þriðjudaginn 24. mars s.l. var frábær eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fjölmargir frábærir vinningar voru í boði og við þökkum foreldrafélaginu og öðrum sjálfboðaliðum sem komu að verkefninu kærlega fyrir skemmtilega kvöldstund.