5. bekkur gerði sér aldeilis dagamun og skellti sér á leiksýningu í Borgarleikhúsinu. Hópurinn sá verkið Kjarval sem er sérstök skólasýning um listamanninn Jóhannes. S. Kjarval. Sýningin er sniðin að nemendum á miðstigi og var hún bæði lífleg, skemmtileg, fræðandi og svo margt í henni sem fangaði athygli krakkanna. Í kjölfarið unnu nemendur svo ritunarverkefni í íslensku um sýninguna og Kjarval.
Hópurinn lét þó ekki staðar numið hér, heldur þáði hann líka boð um heimsókn og fræðslu á Kjarvalsstaði. Þar sáum við sýninguna Kjarval og 20. öldin þar sem safnakennari fór með hópinn um listasalina og fræddi þau um Kjarval og samtímalistamenn hans.
Þetta voru virkilega skemmtilegir og fræðandi viðburðir sem Reykjavíkurborg á hrós skilið fyrir að bjóða upp á fyrir nemendur höfuðborgarsvæðisins. Það mætti gjarnan vera meira af svona vönduðum viðburðum í boði fyrir nemendur, að mati okkar í 5. bekk. Við segjum því bara: TAKK FYRIR OKKUR!