Kennarar á miðstigi eru þetta skólaárið á framhaldsnámskeiði um læsi og ritun frá Háskólanum á Akureyri. Nemendur eiga að kynnast mismunandi textaskrifum og í náttúrufræði skrifuðu sjöundu bekkingar sannfæringartexta sem tengdist loftmengun. Hér er ein grein eftir stúlku í 7. bekk í Hvassaleitisskóla.
Af hverju að taka áhættuna?
Reykingar eru mjög vondar fyrir þig og umhverfið. Þær eru eitt algengasta rusl í heiminum. Reykingar valda mikilli loftmengun og menga líka land, sjó og vötn. Dýrin í náttúrunni borða stubbana og geta veikst eða dáið. Þeir sem reykja yfir aðra spilla heilsu annarra. Sígarettur kosta líka mikið. Er þetta í alvörunni þess virði?
Reykingar eru líka mjög vondar fyrir heilsuna þína. Þær skemma lungun þín og veikja ónæmiskerfið þitt, þær valda hósta, öndunarerfiðleikum og auka líkur á hjartasjúkdómum. Þegar þú reykir verður þú oftar veikur, þolið minnkar og blóðþrýstingurinn hækkar.
Þegar þú byrjar að reykja er erfitt að hætta þannig að það er best að byrja ekki. Lyktin festist líka í fötum og herbergjum og líklega færðu gula fingur og tennur. Húðin verður fyrr hrukkótt, bragðskynið dofnar og það kemur vond lykt út úr þér. Þú ert líka slæm fyrirmynd fyrir þá yngri. Enginn græðir á reykingum, hvorki fólk né náttúran.
Af hverju að taka áhættuna?