Yfirleitt er miðað við að nemendur geti lært að syngja í röddum frá um 10 ára aldri. Að æfa fimmundarsöng getur því hentað vel á mið- og unglingastigi. Hér fyrir neðan er þjóðlag sem henta vel til að syngja í fimmundum (Íslensk þjóðlög bls. 855).
Hvernig finnur maður fimmund?
Upplagt er að kenna nemendum hvernig þeir geti fundið hreina fimmund frá grunntón. Hafi þeir náð tökum á þeirri tækni geta þeir æft sig að syngja fimmundarsöng í frítíma sínum.
aðferð: Velja upphafstón fyrir neðri röddina, kalla hann do og syngja do-re-mí-fa-so (eða do-mí-so). Þá er so upphafstónninn fyrir efri röddina.
aðferð: Velja upphafstón fyrir efri röddina, kalla hann do og syngja svo do-tí-la-so-fa. Þá er fa upphafstónninn fyrir neðri röddina.
aðferð: Nota upphaf laga til að hjálpa sér. Hér eru dæmi um lög sem byrja á hreinni fimmund (do-so)
Litalagið/Stafrófslagið: Do - do - so - so - la - la - so
Star Wars þema lagið: Do - so - fa - mí - re - do² - so