Á undirsíðum þessa flipa má finna hugmyndir að fjölbreyttum verkefnum sem hægt er að vinna með nemendum. Þau ættu að vera kennurum innblástur til að vinna meira með íslensk þjóðlög á margskonar hátt. Verkefnahugmyndirnar eru bara hugmyndir, þeim fylgir ekki nákvæm áætlun og þarf hver kennari að útfæra hana eins og honum hentar best, eftir hópastærð, hljóðfæra- og tækjakosti, aldri og getu nemenda.