Í valmyndinni efst á síðunni er að finna þrjá aðalkafla:
Fróðleikur
Hér eru stuttir og aðgengilegir textar um íslensk þjóðlög og tengt efni. Þar er að auki að finna tengla á gagnlegar vefsíður og upptökusöfn sem tengjast þjóðlögum á einn eða annan hátt. Einnig er þar hægt að lesa greinargerðina sem fylgdi þessu lokaverkefni.
Útsetningar fyrir skólahljóðfæri
Hér er að finna nýjar útsetningar eftir höfund síðunnar á vel völdum þjóðlögum, ætlaðar fyrir stafspil og annað skólaslagverk. Með hverri útsetningu fylgja kennslugögn: PDF með einfaldri nótnaskrift, MuseScore-skrá sem kennarar geta breytt eftir þörfum og MP3-hljóðskrá. Einnig fylgja hugmyndir að kveikjum og upphitun og verkefnin eru tengd hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá.
Verkefnahugmyndir
Þessum hluta er skipt í fjórar undirsíður:
Hver síða inniheldur hugmynd að því hvernig má vinna með þjóðlagaarfinn í tónmenntastofunni. Þessar hugmyndir eru opnar og þarfnast frekari útfærslu kennara sem þurfa að aðlaga þær að sínum þörfum, hópastærð, aldri, getu, hljóðfæra- og tækjakosti. Markmiðið er að nemendur öðlist dýpri skilning á íslenskum þjóðlögum og upplifi þau sem lifandi listform sem hægt er að skapa með, túlka og endurvinna.
Þessi vefur er lokaverkefni mitt til B.Ed.-gráðu frá Háskóla Íslands og er ætlaður tónmenntakennurum sem leita fjölbreyttra leiða til að kynna íslensk þjóðlög fyrir nemendum sínum. Með vefnum fylgir greinargerð, aðgengileg undir flipanum "fróðleikur".
Það er mikilvægt að halda arfinum lifandi – og það gerist ekki nema við leyfum okkur að nota hann í leik og starfi. Íslensk þjóðlög eru almennt ekki höfundarréttarvarin og eru því kjörinn efniviður til skapandi vinnu í tónmenntastofunni. Þau bjóða jafnframt upp á möguleika til samþættingar við aðrar námsgreinar, einna helst íslensku og samfélagsfræði.
Von mín er að þessi vefur nýtist tónmenntakennurum alls staðar á landinu. Ábendingar og spurningar mega gjarnan berast mér með tölvupósti.
Unnur Malín Sigurðardóttir
unnurmalin@gmail.com