Ísmús: Stór gagnagrunnur með upptökum af ýmsu tagi, þ.á.m. kveðnum vísum, þjóðlögum og rímum. Þar má einnig finna ljósmyndir og upplýsingar um tónlistarfólk og þjóðlagaarfinn. Þar eru einnig nótur að fjölda þjóðlaganna úr þjóðlagasafni séra Bjarna Þorsteinssonar [sjá hér]
Kvæðamannafélagið Iðunn: Fjölbreyttur vefur með ógrynni upptaka og fróðleiks um rímnasöng. Einnig eru þar góðar skilgreiningar á helstu hugtökum sem tengjast kveðskap og lagboðum.
Tónlistarsafn Íslands: Á heimasíðu safnsins er að finna greinar, upptökur, myndir og fleira.
Þjóðlagasetrið á Siglufirði: Vefur tileinkaður séra Bjarna Þorsteinssyni og íslenskum þjóðlögum, með upplýsingum um starfsemi Þjóðlagasetursins og viðburði tengda þjóðlagaarfi.
Músík.is: Vefur um íslenska tónlist. Þar má meðal annars nálgast vefútgáfu af Tónlistarsögu Reykjavíkur eftir Baldur Andrésson.
Fornleifur – „Heimild um langspil fyrir aldamótin 1900“ : Fróðleg samantekt eftir dr. Vilhjálm Örn Vilhjálmsson um langspilið, sögu þess og varðveislu.
„Íslensk fiðla“ – grein Matthíasar Þórðarsonar (1919): Pistill úr Árbók Fornleifafélagsins þar sem fjallað er um íslenska fiðlu og sögu hennar.
„Bjarni Þorsteinsson og Þjóðlagasafnið“ – grein eftir Unu Margréti Jónsdóttur: Fjallar um séra Bjarna Þorsteinsson, hlutverk hans í söfnun þjóðlaga og upphaf Þjóðlagasetursins á Siglufirði.
Íslensk þjóðlög – safn séra Bjarna Þorsteinssonar: Skannað eintak af hinu merka safni séra Bjarna, sem inniheldur yfir 1.000 þjóðlög á nótum með athugasemdum og textum.
Leiðarvísir til að spila á langspil og læra sálmalög eptir nótum – Ari Sæmundsen (1855): Skannað eintak af elstu þekktu leiðbeiningum til að leika á langspil. Athyglisvert og sögulegt kennslurit.
Nordic Sounds: Samnorrænt efni sem geymir nokkur þjóðlög frá hverju Norðurlandanna ásamt kennsluhugmyndum sem hægt er að nýta í fjölþjóðlegri tónlistarkennslu.
„Fagurt galaði fuglinn sá…“ – bakkalárverkefni Samúels Þorsteinssonar: Námsefni í tónmennt fyrir mið- og unglingastig sem byggir á íslenskum þjóðlögum.
Arfurinn I Lokaverkefni Önnu Hugadóttur þar sem eru útsetningar á íslenskum þjóðlögum fyrir strengjahljóðfæranemendur.