2026
2026
Fjallabyggð er samfélag með fjölbreyttan hóp íbúa, um 11% samtals, sem á rætur víða um heim. Íbúar af erlendu bergi brotnir hafa lagt mikið af mörkum til atvinnu- og menningarlífs í sveitarfélaginu en eru þó oft ósýnilegir í daglegu félagslífi. Markmið með verkefninu „Fjölmenning í Fjallabyggð“ er að auka sýnileika þessa hóps, gefa honum rödd og skapa vettvang fyrir samfélagslega þátttöku. Á sama tíma kynnast innfæddir íbúar þeim sem hafa flutt til þeirra og því sem þeir hafa fram að færa.
Í gegnum ljósmyndasýningu, sögusafn, rafbók og fjölmenningarhátíð í Brimsölum og Tjarnarborg haustið 2026 fá íbúar af erlendu bergi brotnir rödd og tækifæri til að deila sinni sögu, menningu og reynslu. Verkefnið byggir á samveru, listum og frásögnum sem tengja saman ólíka menningarheima, skapa jákvæða sýn á fjölbreytileika og styrkja samfélagið í heild.
Ida Semey er verkefnastjóri verkefnisins en með henni í verkefninu eru Lára Stefánsdóttir og Björn Valdimarsson. Verkefnahópurinn hefur hist nokkrum sinnum og lagt drög að verkefninu, meðal annars með því að velta fyrir sér hvernig best sé að nálgast myndatöku og sögusöfnun. Í Fjallabyggð búa íbúar af mörgum þjóðernum og verður spennandi að sýna þann fjölbreytileika sem samfélagið byggir á.
Nú þegar síðasta úthlutun styrkja hefur farið fram er verkefnið formlega hafið. Verkefnið hlaut styrk frá SSNE, KEA, Norðurorku og Fjallabyggð. Ida er afar þakklát fyrir þann stuðning sem gerir kleift að ráðast í verkefnið.
Fréttir af verkefninu, kynningar og viðburðir á borð við fjölmenningarlegt vöfflukaffi, tónlistarviðburði og annað tengt verkefninu verða kynntar á netmiðlum og reynt verður að ná sem víðast út á vinnustaði í Fjallabyggð.
Verkefnateymið vonast til að sem flestir taki þátt í þessu skemmtilega og samfélagslega mikilvæga verkefni.
Sumar 2025
Fjöruhreinsun Fegurð fjarða 24. júlí
Samsýning 4. - 5. júlí
Tónleikar Svavar Knútur 29. júní kl. 13.00
Verið hjartanlega velkomin á Golfmót Brimsala 21. júní kl. 11.00
Texas scramble mót.
Kaffi, heitt kakó og léttar veitingar í boði eftir mótið.
Skemmtilegar vinningar og bikar.
Hvatningarverðlaun, verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti o.fl. Sýna minna
Ljósmyndasýning Fegurð fjarða 1.6-30. september