Verkefnið er farið af stað
Guito Thomas og Rodrigo Lopes komu og spiluðu fyrir okkur í fjölmenningarkaffi 8. mars – vel var mætt og ekki var tónlistin af verri endanum. Gestir fjölmenntu og áttu góðar stundir saman. Við fengum tækifæri til að mynda og mikið var spjallað saman. Báðir tónlistarmenn eru að kenna við tónlistaskólanum á Tröllaskaga. Þeir búa báðir í Ólafsfirði með fjölskyldur sínar.
Vöfflukaffi á Brimsölum er orðið fastur liður á sunnudögum og hefur verið auglýst áFacebook. Núna hafa bæst við fjölmenningarkaffi sem hefur verið haldið í 3 skipti. Í hvert skipti hefur komið fólk, ekki endilega sama fólkið en við höfum verið öflug í að dreifa upplýsingum um verkefnið á samfélagsmiðlum og í lóka fréttamiðlum.
Þórarinn Hannesson frá Siglufirði - Tóti troubadúr - kom að spila fyrir okkur 17. mái s.l. allskonar lög.
Setið var yfir kaffibolla 17. mái , borðaðar vöru vöfflur og spjallað um daginn og veginn. Hér er það íbúar frá Grikklandi, Úkráinu og Bulgaríu að hittast.
Við Lára og Björn Valdimarsson hittumst reglulega. Við veltum fyrir okkur myndatöku og sögusöfnun og höfum farið í smá þankahríð varðandi íbúa af erlendu bergi brotna sem búa hér í Fjallabyggð. Þetta eru ansi mörg þjóðarbrot og verður skemmtilegt að sýna margbreytileikann.
Hér má sjá samantekt á Fjöldi þjóðerna í Fjallabyggð. Tekið skal fram að hér er einungis miðað við þann fjölda íbúa sem er með erlend ríkisföng. Það er hópur íbúa sem hefur öðlast íslenskt ríkisfang og þess vegna eru þeir ekki taldir með í þessari samantekt en það eru m.a. íbúar sem eiga Brasilíu, Grikkland og Eistland sem upprunaland.
Unnið hefyr verið í myndatöku af fólki sem hefur tekið vel í að láta mynda sér. Við stefnum á ca. 40 myndir á sýningu auk viðtöl. Ca. 30 myndir eru komnir í hús. Auk þess hafa verið tekið nokkur viðtöl.