Fjölmenning í Fjallabyggð er samfélagslegt og listrænt verkefni sem miðar að því að efla sýnileika, samkennd og þátttöku íbúa af erlendum uppruna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Með ljósmyndasýningu, sögusafni, rafbók og fjölmenningarhátíð verður sköpuð lifandi mynd af fjölbreyttu mannlífi sveitarfélagsins. Verkefnið gefur nýbúum og fjölbreyttum hópum íbúa rödd og vettvang til að miðla eigin reynslu, menningu og sýn á samfélagið sem þeir eru hluti af.
Verkefnið sprettur upp úr starfsemi Brimsala í Ólafsfirði sem á undanförnum ár hefur orðið vettvangur fyrir menningu, samfélagsverkefni og skapandi samveru.Fjallabyggð hefur fjölmennt samfélag þar sem 10% íbúa eiga rætur í fjölmörgum löndum, en þessi fjölbreytni hefur hingað til lítið sést í opinberu menningarlífi.Með verkefninu verður til sýnilegur vettvangur þar sem þessi hópur fær að njóta sín og verða virkir þátttakendur í menningarlegri uppbyggingu. Á heimasíðu verður hægt að fylgjast með framvindunni.
Verkefnið hefst í janúar 2026 með röð fjögurra kaffisamkoma í Brimsölum, einni í lok hvers mánaðar fram í apríl.Þessar samkomur eru hugsaðar sem félagslegur og skapandi vettvangur þar sem íbúar af ólíkum uppruna hittast, kynnast og ræða málefni sem varða líf þeirra og taka þátt í mótun verkefnisins. Ljósmyndari mætir á samkomurnar, kynnir hugmyndina að ljósmyndaverkinu og byrjar að mynda þá sem vilja taka þátt. Á sama tíma hefst söfnun stuttra sagna og viðtala, þar sem fólk segir frá uppruna sínum, lífinu í Fjallabyggð, áskorunum og tækifærum og hvernig það upplifir tengsl sín við staðinn.
Frá maí og fram í júlí heldur ljósmyndunin áfram í samráði við einstaklinga og fjölskyldur. Myndirnar verða unnar í nánu samstarfi við þátttakendur, þannig að þeir hafi áhrif á framsetningu og val á myndum. Samhliða er unnið að frásögnunum. Þær verða þýddar, styttar og hnitmiðaðar til notkunar bæði á sýningu og í rafbók.
Í ágúst og september fer fram eftirvinnsla, val mynda, prentun og rammagerð, auk undirbúnings fyrir fjölmenningarhátíðina og rafbók. Ljósmyndirnar verða prentaðar í A4 og A3 stærðum og hengdar upp í Brimsölum, en frásagnirnar fylgja með sem prentaður texti eða tengdar með QR-kóða á veggjum. Á sama tíma er unnið að rafbókinni Fjölmenning í Fjallabyggð, með ljósmyndunum og munnlegum og skriflegum frásögum ásamt inngangi og fræðilegri umfjöllun um verkefnið og samfélagið. Rafbókin verður ókeypis og dreifð til skóla, bókasafna og notuð í kynningu sveitarfélagsins.
Opnun sýningarinnar og fjölmenningarhátíðin verða haldnar saman í lok september 2026 í Brimsölum og Tjarnarborg. Þar koma saman íbúar, listafólk og gestir til að fagna fjölbreytileikanum í samfélaginu. Á dagskrá verður tónlist, matarsmakk, kynningar og lifandi umræður. Fyrirtæki og matvöruverslanir verða hvött til að styrkja hátíðina með hráefni eða efnisstyrkjum, og þátttakendur leggja til rétti frá eigin menningarsvæðum. Hátíðin verður opin öllum og tekið verður táknrænt aðgangsgjald sem rennur til að standa straum af hluta kostnaðar.
Sýningin verður opin almenningi út októbermánuð og verða Brimsalir þá nýttir sem menningarvettvangur fyrir samtöl og kynningar á verkefninu. Með þessum hætti verður verkefnið lifandi hluti af menningarlífi sveitarfélagsins og eflir þannig samfélagsauð og samstöðu.
Verkefnið eflir tengsl milli íbúa, stuðlar að jákvæðri ímynd Fjallabyggðar sem opins og fjölmenningarlegs samfélags, og sýnir hvernig listir, samvera og mannlegar frásagnir geta orðið drifkraftur samfélagslegrar þróunar. Verkefnið fellur þannig vel að áherslum SSNE um blómlegar byggðir, lýðheilsu, menningu, sjálfbærni og þátttöku ólíkra hópa.
Verkefnið styður við heimsmarkmið SÞ nr. 5 Jafnrétti kynjanna, 10 Minnka ójöfnuð, 11 Sjálfbærar borgir og samfélög, 16 Friður og réttlæti og 17 Samstarf um markmiðin. Það eflir þátttöku og sýnileika íbúa af erlendum uppruna, stuðlar að jafnrétti, samstöðu og samfélagsþróun og byggir á samvinnu sveitarfélags, listafólks og íbúa.