Verkefnið er nýnæmi á svæðisvísu sem sameinar listir,samfélagsþróun og fjölmenningarlegt jafnrétti á lifandi og þátttökumiðaðan hátt.Þetta er fyrsta heildstæða verkefnið í Fjallabyggð sem varpar ljósi á fjölmenningu í gegnum listir og samfélagstengingu, og þar með mikilvægt fordæmi sem hægt er að endurtaka annars staðar á Norðurlandi.Verkefnið gefur íbúum af erlendum uppruna rödd og skapar varanlega menningarlega arfleifð fyrir sveitarfélagið í formi rafbók og heimsíðu með myndefni og sögusöfnun. Verkefnið styrkir Brimsali og Tjarnarborg sem menningarlega miðju og eykur aðdráttarafl svæðisins. Að verkefnistíma loknum er stefnt að áframhaldandi sýningum, samstarfi og nýjum ljósmyndaverkefni.