Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi fjögurra aðila úr heimabyggð:
Ida Semey, verkefnastjóri, kennari og verkefnastjóri við Menntaskólann á Tröllaskaga, sem ber ábyrgð á heildarstjórn, fjármögnun, kynningu, vefsetningu og rafbókarinnar.
Björn Valdimarsson, ljósmyndari úr Fjallabyggð, sem sér um myndatökur, eftirvinnslu og prentun.
Lára Stefánsdóttir, ljósmyndari og sýningastjóri. Hún ber ábyrgð á framsetningu, uppsetningu og faglegu skipulagi sýningarinnar. Hún sér einnig um vinna með texta og rafbók.
Fjallabyggð, samstarfsaðili sem styður verkefnið með aðstöðu og húsnæði í Tjarnarborg, auk kynningar og miðlunar frétta og efnis um verkefnið í opinberum miðlum sveitarfélagsins.
Þessi samsetning tryggir að verkefnið sé bæði faglega framkvæmt og staðbundið, með sterkri tengingu við íbúa og menningarlíf sveitarfélagsins.