Inkskape (2D): Mynd á poka (hönnun á poka)
Horfa á kennslumyndband um fríhendisteikningu.
Teikna mynd fríhendis í Inkscape í réttri stærð (A4) af því sem á að pressa á pokann.
Vinna myndina þannig að hægt sé að prenta hana út.
Vista myndina í pdf eða svg.
Færa myndina yfir á Cricut Design Space og tengja við fjölskerann.
Velja vínil: ákveða hvort myndin verði öll í sama lit eða velja marga liti.
Prenta út mynd í mismunandi pörtum (ef margir litir)
Pressa mynd á poka
Undirbúningur: Kveikja um sundlaugar og jarðhitann hefur þegar farið fram í öðrum tímum. Ef unnið er samþætt með list- og verkgreinum þá er tilvalið að nemendur saumi poka sem hægt er að pressa mynd á. Gott að rifja upp kveikjuna með nemendum og spurt hvað við getum búið til eða framleitt sem nýtist okkur fyrir sundferðir/skólasund? Þessi umræða gæti farið fram í textílmennt. Þegar sundpokinn er tilbúinn þá læra nemendur á forritið Inkscape. Kennari velur annað hvort að sýna sjálfur eða nýta sér tilbúin myndbönd. Nemendur eru í kjölfarið beðnir um að búa til eigin myndir og hafa leiðbeiningarnar í huga.
Framleiðsluferlið: Hugmynd, skissa í Inkscape, yfirfærsla í Cricut Design fyrir fjölskerann, vinnsla í því forriti (velja speglun svo að myndin prentist rétt út), útprentun á fatavínil (passa að vínillinn snúi glanshlið niður), plokka vínilinn frá myndunum, púsla mynd/myndum á efnið, hitapressa á efni og plokka plastið af.
Frágangur: Ganga frá mottum, vínil og hitapressu. Muna að vista myndir í forritunum.
Í þessu myndbandi er sýnt hvernig hægt er að búa til skapandi myndir á auðveldan hátt með Inkscape ásamt því að undirbúa myndina fyrir vínil eða geislaskurð.
Hér er farið í það hvernig myndir eru lagaðar til og vektorum breytt.
Hér er sýnt það ferli hvernig texti er búinn til og breytt um leturgerð.
Hér sést þegar búið er taka út útlínur eftir vínilskurð í Roland vínilskurðavél, takið eftir að myndin er spegluð sem er mikilvægt að hafa í huga vegna þess að myndin er skorin á röngunni á tauvínil. Tauvínill sem kemur með svokallaðri yfirfærslufilmu (e. transfer film) er þeim eiginleikum gæddur að nauðsynlegt er að spegla myndina. Á þessari mynd sést hvað gerist ef að ekki er hugað að því að skurðalína sé 0,02 mm.
Nú er búið að plokka utan af myndinni.
Myndin sett í fatapressu og myndin er pressuð undir 160 gráður hita í 20 sekúndur. Hér snýr myndin rétt og yfirfærslufilman snýr upp. Hún þolir vel hitann frá fatapressunni.
Sundpokinn tilbúinn, sniðugt er að setja nafn með endurskini.
Hér sést geislaskorinn platti ásamt vínilskornum poka
Hér sést geislaskorinn platti, teiknaður fríhendis með hjálp Inkscape.
Best er að nota við sem er sérhannaður fyrir geislaskurð til þess að koma í veg fyrir uppgufun óvistvæns líms í hráefninu.
Fyrsta skref var að skoða kennslumyndband um fríhendisteikningu í Inkscape.
Næsta skref var að prófa að teikna. Fyrsta myndin var teikning með þremur blýöntum. Fínn undirbúningur fyrir næstu mynd.
Næsta mynd var logandi kerti á bakka.
Hér er myndin tilbúin í forritinu.
Hjarta á kertið til skrauts.
Litir settir á logann og kertin. Það er óþarfi þegar skorið er í vínil. Litur vínilsins ræður litnum á kertinu, ekki hvað er litað í forritinu.
Myndin færð yfir á Cricut Design Space. Nauðsynlegt er að hlaða forritinu niður. Forritið finnst á cricut.com
Stærð myndar sést fyrir ofan logann.
Ferlið frá Inkscape yfir á Cricut Design
Stærð mæld fyrir mynd á pokann.
Velja litaðan vínyl. Passa að þeir séu fyrir fatapressu. Vínyllinn er mattur öðrum megin og glansandi hinum megin.
Hlutar valdir í Cricut forritinu fyrir litaða vínylinn.
Valið er Contour og smella á þá hluta sem á að skera, hinir fara til hliðar og eru "faldir" á meðan.
Hér er starfsmaður Mixtúru að útskýra ferlið.
myndband sem sýnir ferlið frá vínil að tilbúnu verki.