Markmið
Að nemandi:
læri á Tinkercad og Inkscape
eflist í sjálfstæðri og skapandi hugsun, tileinki sér skapandi vinnubrögð og tilraunamennsku
Að nemandi geti:
útskýrt hugmyndir sínar með því að rissa upp málsetta vinnuteikningu
unnið verkefni frá hugmynd að fullunnum hlut með áherslu á form og útlit,
Sjónlistir
notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun,
notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla,
Upplýsinga – og tæknimennt
nýtt rafrænt námsefni á ýmsu formi í tengslum við vinnutækni, vinnulag og annað nám
nýtt sér mismunandi tæknibúnað á hagkvæman og fjölbreyttan hátt
nýtt sér möguleika rafræns stuðnings
Náttúrugreinar
lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku á Íslandi,
gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun,
Stærðfræði
rannsakað og greint tvívíð og þrívið form, teiknað einfaldar flatar- og þrívíddarmyndir
Stuðst er við viðmið um mat á lykilhæfni í grunnskóla sem sett eru fram í fimm liðum og eru sameiginlegir öllum námssviðum:
Skapandi hugsun og frumkvæði í efnistökum og úrvinnslu.
Hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt, í samstarfi við aðra og undir leiðsögn.
Hæfni nemenda til að nýta margvíslega miðla í þekkingarleit, úrvinnslu og miðlun og nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt.
Hæfni nemenda til að bera ábyrgð á eigin námi og leggja mat á eigin vinnubrögð og frammistöðu.