Þessi vefsíða heldur utan um verkefnið Stafræn hönnun og framleiðsla á námskeiðinu Leikur, tækni og sköpun.
----------------------
Lýsing á verkefni:
Nemendur velja sér viðfangsefni af tveimur sviðum stafrænnar hönnunar sem eru hentugar í skólastarfi og kynna sér þá tækni og aðferðir sem hægt er að beita:
Tvívíð hönnun (flatarteikning) unnin annaðhvort sem fríhendisteikning með blýanti/svörtum túss eða sem vektorteikning í forritinu Inkscape. Unnið er með þessar teikningar til að skera ýmis efni með geislaskera, eða til að skera út mynstur í vínil í vínilskera.
Þrívíð hönnun, þar sem hugmyndin er unnin annaðhvort í þrívíddarmótunarforriti, t.d. Tinkercad (frá Autodesk) eða ZBrushCoreMini (frá Pixologic). Hinn hannaði hlutur er síðan undirbúinn til prentunar í þrívíddarprentara og prentaður.
tvívíð hönnun
Vigurteikniforrit (vektorateikniforrit) sem notað er til að vinna með flata hluti í tvívídd eins og myndir sem eru svo prentaðar út í fjölskera eða geislaskera.
þrívíð hönnun
Forrit sem er m.a. notað til að hanna hluti í þrívídd sem eru svo prentaðir út í þrívíddarprentara.