Hugmyndin að verkefninu mótaðist út frá hugmyndum um skapandi skólastarf. Í skapandi skólastarfi er stuðst við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Skipulagið stuðlar meðal annars að náms- og vettvangsferðum auk samþættingu milli námsgreina og eru list- og verkgreinar gjarnan í hávegum hafðar. Verkefnin ýta undir forvitni, spurningar og heilabrot þar sem þekkingarleit og sköpunarferli er mikilvægur þáttur (Ingibjörg Jóhanssdóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Torfi Hjartarson, 2012). Þessar áherslur tengjast lykilhæfni í grunnskóla sem er rauði þráðurinn í verkefninu. Lykilhæfnin snýr að þekkingarleit, nýtingu upplýsinga, sjálfstæði í vinnubrögðum, samstarfi og ábyrgð á eigin námi (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013).
Við vildum skapa eitt heildstætt verkefni þar sem áhersla væri lögð á ferlið frá hönnun til sköpunar. Markmiðið var einnig að samþætta námsgreinar í þeirri von um að fleiri kennarar, aðrir en list- og verkgreinakennarar, sjái möguleikann á að nýta tvívíða og þrívíða hönnun í almennri kennslu. Okkur þótti liggja vel við að hanna sundpoka úr tilfallandi efnivið eins og gömlum gardínum, lökum eða bolum, skreyta hann með tvívíðri hönnun og merkja með þrívíðri.
Sundferðir eru hluti af menningu okkar en það sem veitir okkur þessi forréttindi er jarðhitinn og því tilvalið að tengja náttúrugreinar verkefninu okkar. Í Aðalnámskrá grunnskóla segir að nemendur skuli gera sér grein fyrir nýtingu og vernd auðlinda og umhverfis...
Bókin Ísland hér búum við er gjarnan kennd á miðstigi og er vel til þess fallin að kynna nemendur fyrir okkar helstu náttúruauðlindum landsins eins og jarðhitanum. Önnur hæfniviðmið sem við nýtum okkur í verkefninu koma úr hönnun og tækni, sjónlistum, upplýsinga- og tæknimennt og stærðfræði.
Með því að búa til nytsamlegan hlut og tengja þannig saman skapandi vinnu og nám um nærumhverfi sitt og veruleika er ætlunin að stuðla að merkingarbæru námi.
Skapandi þátturinn í verkefninu felst í því að prófa sig áfram á einföldum myndum í forritinu Inkscape og formum í þrívíddarmótunarforritinu Tinkercad. Nemendur hafa frelsi innan ákveðins ramma þar sem þeir ráða útfærslu á sundtöskunni. Til að koma til móts við nemendur með sérþarfir sem geta ekki fylgt verklýsingu fyrir Tinkercad geta til að mynda valið sér tilbúið nafnspjald inni á síðunni https://www.thingiverse.com/. Ef réttur efniviður er til staðar má svo mála nafnspjaldið þegar það er tilbúið. Þannig má hvetja alla nemendur til skapandi skila.
Verkefnið er í raun þríþætt þó svo aðeins verði farið ítarlega í tvo af þremur þáttum hér:
Nemendur byrja á að kynna sér nýtingu jarðhitans (með umsjónarkennara).
Annar þátturinn snýr að því að endurnýta efni við að búa sér til sundpoka. Gömul lök, bolir eða jafnvel gardínur gætu nýst við gerð pokanna.
Skapandi þáttur verkefnisins felst svo í tvívíða og þrívíða verkefninu:
Tvívítt verkefni: Nemendur prófa sig áfram í forritinu Inkscape og hanna mynd fyrir sundpoka sem síðan er prentuð út og pressuð á taupoka með bolapressu. Hér má finna nánari verklýsingu fyrir tvívíð verkefni.
Þrívítt verkefni: Nemendur prófa sig áfram í forritinu Tinkercad og hanna nafnspjald sem þeir prenta svo út í þrívíddarprentara. Hér má finna nánari verklýsingu fyrir þrívíð verkefni.
Þess ber að geta að verkferlarnir eru þeir sömu fyrir hvaða verkefni sem er. Það má því nota hugmyndaflugið og tengja við hvaða námsefni sem er þó hér sé unnið með sundpoka.