Leiðsagnarnám fer fram jafnt og þétt þar sem lagt er bæði mat á ferlið og lokaafurð. Tilgangur leiðsagnarnáms er að valdefla nemendur og gera þá virkari í eigin námi. Áhersla er á að mistök séu nýtt til framfara, markmið séu skýr og að nemendur fái tækifæri til að tjá sig um námsefnið (Leiðsagnarnám, (2021).
Við matið er hugað að þáttum eins og frumkvæði, sköpun, framförum og vinnubrögðum. Á ýmsum stigum verkefnisins gefst tækifæri fyrir nemendur og kennara að eiga samtal til að fara yfir það sem komið er og hvert framhaldið sé.
Verkefnið er vel til þess fallið að hafa vörður eftir hvern verkþátt, þ.e. :
þegar nemendur hafa kynnt sér nýtingu jarðhita,
þegar nemendur hafa búið til sundpokann sinn og skissað upp hugmyndir að merkispjaldi og mynd,
þegar öllum verkefnunum er lokið.
Nemendur verða þá vel upplýstir um hvar, hvenær og hvernig þeir verða metnir og eftirfarandi kvarði sýnilegur allt ferlið (Ingibjörg Jóhanssdóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Torfi Hjartarson, 2012).