Stutt greinargerð um æfinguna, ígrundun um hvernig til tókst með einstaka þætti, þátt hvers nema og hugmyndum hópsins um möguleika og nýtingu tækninnar í skólastarfi.
Verkefnið er samvinnuverkefni fjögurra nemenda. Samvinnan gekk mjög vel og skiptum við okkur upp í tvo hópa. Jóhanna og Októvía unnu saman í hóp þar sem þær vinna í sama grunnskóla og því hentugt fyrir þær að hittast í vinnunni. Linda og Móses voru saman og unnu verkefnið í sitthvorum landshlutanum, þar sem Móses býr á Austurlandi og Linda í Reykjavík.
Hópurinn hittist fjórum sinnum á zoom fundi yfir tveggja vikna tímabil til að stilla saman strengi. Á fyrsta fundi var ákveðið að skapa eitt heildstætt verkefni þar sem áhersla yrði lögð á ferlið frá hönnun til sköpunar. Hópurinn lagði upp með þá hugmynd að hanna mynd á sundpoka í Inkscape og nafnspjald í Tinkercad.
Jóhanna og Októvía ákváðu að kynna sér þrívíða hönnun og Tinkercad þar sem skólinn sem þær vinna í er nýbúinn að fjárfesta í þrívíddarprentara. Þær prófuðu sig áfram í Tinkercad með því að setja saman ólík form og prófa virkni mismunandi skipana. Þær fylgdu einnig kennslumyndböndum frá Móses og gekk það mjög vel en hvorug hafði unnið verk fyrir þrívíddarprentara áður. Eftir að fyrra nafnspjaldið var prentað var ákveðið að gera ýmsar útlitsbreytingar áður en það seinna yrði prentað. Ánægjulegt var að komast að því hve einfalt var að vinna með prentarann en bæði nafnspjöldin komu mjög vel út.
Móses og Linda tóku að sér að vinna með tvívíða hönnun. Linda nýtti sér aðstöðu í Mixtúru og bjó til mynd á taupoka í tvívíða hluta verkefnisins. Hún bjó til fríhendismynd í Inkscape, færði myndina á milli Inkscape og Cricut Design, valdi mismunandi litaðan vínil, prentaði út í fjölskeranum og straujaði alla hluta myndarinnar í sitthvoru lagi. Allt þetta í fyrsta sinn og fannst þetta mun einfaldara en hún hélt. Móses vinnur í Fablab á Austurlandi og gat því nýtt aðstöðuna þar. Hann gerði myndband um tvívíða fríhendis hönnun og hannaði mynd sem var skorin út með Roland vínilskera smiðjunnar og síðan pressuð á sundpoka. Sama hönnun var síðan nýtt sem platti í geislaskurð þar sem notuð var masónít plata.
Hópurinn hefur í sameiningu séð um að breyta og bæta við vefsíðuna öllum þeim upplýsingum sem þurfa að koma fram, allir lögðu sig fram og lærðu eitthvað nýtt.
Verkefni eins og þetta er hægt að nýta á margvíslegan hátt og má í raun tengja við hvaða námsgrein sem er. Þá skiptir öllu að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín. Nemendur læra á tvívíddarforrit og þrívíddarforrit eins og Inkscape og Tinkercad og skiptir þá aðeins máli að hafa aðgang að tölvum. Hönnun og framleiðsla af þessu tagi getur eflt ýmsa hæfni hjá nemendum eins og sjálfstæði, skapandi vinnubrögð og tilraunamennsku. Auk þess má ætla að nemendur valdeflist í eigin námi ef leiðsögn er rétt háttað.