Síðuskóli

Hagnýtar upplýsingar um val nemenda

Í stundaskrá nemenda í 8., 9. og 10. bekk eru 37 kennslustundir. Af þeim eru 6 stundir í 8., 9. og 10. bekk í valgreinum. Þannig hafa nemendur töluvert tækifæri til að hafa áhrif á grunnskólanám sitt. Valið skiptir miklu máli og gott að hafa þætti eins og áhugasvið og framtíðaráform í huga og athuga að velja sjálfstætt. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að nám í valgreinum er ekki frábrugðið námi í öðrum greinum, þar gilda sömu reglur um mætingu o.þ.h. og í kjarnagreinum.

Skólaárið 2022-2023 geta nemendur valið úr fjölmörgum greinum sem nánar eru kynntar hér. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt úrval valmöguleika og von okkar er sú að allir geti fundið sér áhugaverðar og spennandi greinar.

Flestar greinar eru opnar fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk en þó eru nokkrar einungis fyrir 9. og 10. bekk. Vinsamlegast hafið það hugfast.

Almennt samsvarar hver grein 2 kennslustundum á viku og eru kenndar hálfan vetur hver.

Því þarf að velja sérstaklega fyrir haustönn annars vegar og vorönn hins vegar.

Samvalsgreinar eru kenndar í grunnskólum bæjarins, nokkrar í VMA og á fleiri stöðum. Reiknað er með að nemendur geti nýtt sér strætisvagnakerfi bæjarins til að komast milli staða.

Fyrstu 1-2 vikur í valgrein er getur verið mögulegt að skipta um grein en þó er slíkt alltaf háð aðstæðum í hverju tilviki fyrir sig. Eftir þann tíma er ekki hægt að skipta milli greina.

Nemendur eiga kost á að fá nám við sérskóla metið sem og ýmiskonar félags- og/eða íþróttaiðkun eða þjálfun:

  • Einfalt metið val samsvarar tómstundastarfi 1-5 klst. á viku.

  • Tvöfalt metið val samsvarar iðkun frá og með 5 klst. á viku í einni íþrótt/félagsstarfi eða þátttaka í tveimur aðskildum íþróttum/félagsstarfi.

  • Einnig geta nemendur fengið fjarnám við framhaldsskóla metið.

Til staðfestingar þátttöku í metnu vali þarf að skila staðfestingu á ástundun í sept/okt á þar til gerðu eyðublaði.

Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á iðkun í metnu vali og skilum á staðfestingu til að starfið fáist metið. Ef breyting verður á, eða nemendur hætta að iðka þá tómstund sem metin er ber að tilkynna það strax til skóla til að hægt sé að bæta inn valgrein strax.

Athugið að metið val má að hámarki koma í stað 4 kest. á viku. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti.

Nemendum og foreldrum/forráðamönnum er velkomið að ráðfæra sig við Helgu Lyngdal deildarstjóra (helgal@akmennt.is) ef spurningar vakna. Sími skólans er 462 2588.


Valinu þarf að skila inn í síðasta lagi þriðjudaginn 31. maí 2022.


Innanskólaval

Fiðringur

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Vorönn


Undirbúningur fyrir þátttöku í hæfileikakeppni grunnskóla Akureyrar. Ýmis störf í boði, hljóð, búningar, hár og framkoma eru meðal viðfangsefna valsins.

Myndlistarval: Málun og teiknun

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn

Fimmtudagur


Hefðbundin teiknun og málun ásamt stafrænni teiknun. Kenndar verða fjölbreyttar aðferðir í teiknun og málun, og unnið með mismunandi efni, s.s. vatnslitir, blek, þekjuliti og akrýlliti. Einnig verður kennt á procreate forritið og grunnatriði í stafrænni teiknun.


Námsmat: Árangur verður metinn eftir ástundun, virkni í tímum, framförum og áhuga.

Myndlistarval: Mótun

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn

Fimmtudagur


Mótun í fjölbreyttan efnivið, hlutir búnir til úr t.d. leir, pappírsmassa, gifsi, steypu, kertavaxi og sápu.Unnið frá hugmynd/skissu að þrívíðum hlut.


Námsmat: Árangur verður metinn eftir ástundun, virkni í tímum, framförum og áhuga.

Heimilisfræði

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Vorönn

Miðvikudagur


Helstu markmið eru að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð, auka áhuga fyrir matargerð og þjálfa hæfni til að vinna með öðrum. Áhersla er lögð á að æfa mismunandi matreiðslu og bakstursaðferðir. Lögð áhersla á fjölbreytni og að byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa þegar fengið. Fræðslu um örverur, dreifinarleiðir og krossmengun fléttað inn í verklegu tímana.


Námsmat: Virkni og áhugi í kennslustundum, metið eftir hvern tíma.

Textíl

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn

Miðvikudagur eða fimmtudagur


Hvað langar þig að læra meira í textílmennt eða textílhönnun? Möguleikarnir eru margir: hekl, prjón, þæfing, vefnaður, hnýtingar, útsaumur, vélsaumur, sníðavinna, litun (t.d. tie-dye), þrykk og/eða verkefni tengd nýja vínilskeranum, en hann býður uppá marga spennandi möguleika. Einnig hægt að vinna að alls konar endurnýtingu og endurhönnun.


Markmið er að styðja nemendur í að vinna að textílverkefnum á eigin áhugasviði.

Aðstoð á leikskóla

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn

Mánudagur, Þriðjudagur, Miðvikudagur, Fimmtudagur


Helstu markmið eru að nemendur kynnist starfsemi leikskóla, njóti samvista við börn og öðlist færni í vinnu með börnum á leiksskólaaldri.

Nemendur kynnast þeim störfum sem unnin eru á leikskóla og taka þátt í starfinu undir leiðsögn starfsmanna leikskólans.


Námsmat: Ástundun, virkni, frumkvæði og kurteisi.

Íþróttaval

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn

Miðvikudagur


Markmið: Að nemendur fái að kynnast hinum ýmsu íþróttagreinum, leikjum og fái aukna hreyfingu.


Lýsing: Kennslan skiptist í boltaíþróttir, leiki, þrekæfingar og ýmsar aðrar íþróttir. Kennsla fer fram bæði inni og úti.


Námsmat: Ástundun, virkni, frumkvæði og kurteisi.

Félagsmiðstöðvaval

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn


Valgrein fyrir þá sem vilja skipuleggja starfið í sinni félagsmiðstöð (setja upp viðburði, auglýsa þá og stjórna þeim).


Nemendur fá einnig fjölbreytta fræðslu og taka þátt í umræðum og hópefli/leikjum. Lögð er áhersla á reynslunám, tómstundir, samvinnu og félagsmál. Mælst er til þess að nemendur í valinu séu virkir þátttakendur í sinni félagsmiðstöð. Nemendum í Félagsmiðstöðvavali býðst jafnframt að taka þátt á Landsmóti Samfés og Góðgerðavöku Félak.

Sérfræðingur í ýmsum kennsluforritum

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn


Leikið sér með ýmis kennsluforrit, smáforrit (öpp), tæki og tækni sem kennari og nemendur velja í sameiningu. Nemendur þjálfast í notkun ýmissa verkfæra og hluti af valgreininni er að aðstoða yngri nemendur að ná tökum á nokkrum verkfærum í samráði við kennara.

Námsmat: Virkni, áhugi, sjálfstæði og jákvæðni

Stuðningur við bóknám

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Síðuskóli


Haustönn, Vorönn


Í stuðningi við bóknámi vinna nemendur að því að efla þekkingu sína og færni í bóklegum greinum s.s. stærðfræði, tungumálum og því sem þeir þurfa aðstoð við. Tímarnir eru hugsaðir sem stuðningur við námsefni unglingadeildar. Nemendur fá kennslu og frekari þjálfun í því námsefni sem unnið er með og jafnframt er lögð áhersla á Starupprifjun og kennslu. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á viðfangsefni í hverjum tíma nema kennari ákveði annað. Ef ekkert liggur fyrir hjá nemendum fela kennarar þeim verkefni. Mikilvægt er að nýta alla tíma vel og er góð ástundun náms skilyrði.


Námsmat: Verkefni og vinnusemi í kennslustundum metin.