Lundarskóli

Hagnýtar upplýsingar um val nemenda

Í stundaskrá nemenda í 8., 9. og 10. bekk eru 37 kennslustundir. Af þeim eru 6 stundir í valgreinum. Þannig hafa nemendur töluvert tækifæri til að hafa áhrif á grunnskólanám sitt. Valið skiptir miklu máli og gott að hafa þætti eins og áhugasvið og framtíðaráform í huga og athuga að velja sjálfstætt út frá eigin áhuga. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að nám í valgreinum er ekki frábrugðið námi í öðrum greinum, þar gilda sömu reglur um mætingu o.þ.h. og í kjarnagreinum.

Skólaárið 2021-2022 geta nemendur valið úr fjölmörgum greinum sem nánar eru kynntar hér. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt úrval valmöguleika og von okkar er sú að allir geti fundið sér áhugaverðar og spennandi greinar.

Flestar greinar eru opnar fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk en þó eru nokkrar einungis fyrir 9. og 10. bekk. Vinsamlegast hafið það hugfast.

Almennt samsvarar hver grein 2 kennslustundum á viku og eru kenndar hálfan vetur hver og því þarf að velja sérstaklega fyrir hvora önn.

Samvalsgreinar eru kenndar í grunnskólum bæjarins, nokkrar í VMA og á fleiri stöðum. Reiknað er með að nemendur geti nýtt sér strætisvagnakerfi bæjarins til að komast milli staða.

Fyrstu 1-2 vikur í valgrein getur verið mögulegt að skipta um grein en þó er slíkt alltaf háð aðstæðum í hverju tilviki fyrir sig.
Eftir þann tíma er ekki hægt að skipta milli greina og því mikilvægt að vanda valið vel.

Nemendur eiga kost á að fá nám við sérskóla metið sem og ýmiskonar félags- og/eða íþróttaiðkun ásamt þjálfun hjá íþróttafélagi. Einfalt metið val samsvarar tómstundastarfi 1-5 klst. á viku. Tvöfalt metið val samsvarar iðkun í 5 klst. eða meira á viku í íþróttum, þjálfun eða félagsstarfi. Einnig geta nemendur fengið fjarnám við framhaldsskóla metið.

Til staðfestingar þátttöku í metnu vali þarf að skila staðfestingu á ástundun í sept/okt á þar til gerðu eyðublaði sem nemendur fá hjá deildarstjóra.

Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á iðkun í metnu vali og skilum á staðfestingu til að starfið fáist metið. Ef breyting verður á, eða nemendur hætta að iðka þá tómstund sem metin er ber að tilkynna það strax til skóla til að hægt sé að bæta inn valgrein strax.

Athugið að metið val má að hámarki koma í stað 4 kest. á viku. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti.

Nemendum og foreldrum/forráðamönnum er velkomið að ráðfæra sig við Fjólu Dögg Gunnarsdóttur, deildarstjóra (fjolad@akmennt.is) ef spurningar vakna. Sími skólans er 462-4888.


Valinu þarf að skila inn í síðasta lagi föstudaginn 20. maí 2022.


Innanskólaval

Fiðringur

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Vorönn


Nemendur skipuleggja og semja atriði fyrir hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri sem ber heitið Fiðringur og er náfrændi Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta er hæfileikakeppni þar sem 8. 9. og 10. bekkir fá að taka þátt.


Í þessu felst undirbúningur og æfingar fyrir lokasýningu í Hofi að vori, nemendum gefst tækifæri til að hanna búninga, sviðsmynd, tónlist, dans og fleira.

Aðstoð við bóknám

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn, Vorönn

Mánudagur, Þriðjudagur, Miðvikudagur


Markmið: Að nemendur, sem telja sig hafa þörf á, fái aðstoð við námið. Nemendur skipuleggja sjálfir hvað þeir ætla að vinna í tímanum, en þess er krafist að það ríki vinnufriður og að nemendur séu vinnusamir. Ef í ljós kemur að nemendur virðast ekki hafa þörf né áhuga á að nýta sér tímana verða þeir að fara í aðra valgrein.


Námsmat: Ástundun, áhugi og frammistaða í kennslustundum.


Nemendur þurfa að vera 2x 40 mín.


Sértæk aðstoð í námi

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn, Vorönn


Valgrein fyrir nemendur sem þurfa aukinn stuðning í námi og utanumhaldi – fámennur hópur þar sem unnið verður með heimanám og önnur verkefni eftir þörfum. Nemendur geta einnig fengið aðstoð við skipulagningu og utanumhald.

Prjón og hekl

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Vorönn

Miðvikudagur

Markmið: Að æfa færni í að prjóna eftir einföldum uppskriftum, prjóna með tveimur eða fleiri litum í einu, prjóna með 5 prjónum og hanna eigið munstur. Einnig að æfa færni í að hekla eftir einföldum uppskriftum. Mikilvægt er að tileinka sér ýmis tákn sem gilda í uppskriftum bæði í prjóni og hekli.

Námsgögn: Prjónablöð t.d. Lopi, Ýr og fleira (sokkaprjónar, hringprjónar) og garn: léttlopi, hespulopi, o.fl.

Kennsluhættir: Farið yfir helstu táknin í munstrum, úrtöku og útaukningu í prjóni og hekli. Nemendur geri 10 prufur og setja í möppu ásamt munstri. Skyldustykkin verða til dæmis: prjónaðir vettlingar-nemendur lita sjálfir garn, prjónaðir sokkar, heklað sjal, hyrna eða hekluð taska. Þegar nemendur hafa lokið skyldustykkjum er frjáls vinna. Nemendur fá garn í prufur og skyldustykkin.

Bakstur

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn, Vorönn

Mánudagur


Lýsing: Kenndar verða allar helstu bakstursaðferðir s.s. brauðbakstur með bæði lífrænum og ólífrænum lyftiefnum, kökubakstur af ýmsu tagi s.s. hrærðar kökur, hnoðaðar kökur, þeyttar kökur, auk kökuskreytinga.


Markmið: Að nemendur nái tökum á fyrrgreindum tegundum baksturs og geti í lok tímabils bakað án aðstoðar eftir uppskriftum og helmingað eða margfaldað uppskriftir eftir þörfum og jafnvel búið til sína eigin uppskrift.


Kennsluaðferðir: Sýnikennsla, hóp og paravinna.


Námsmat: Mat á verkefnum í lok hvers tíma, kennaramat og sjálfsmat.

FIRST LEGO League

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn

Mánudagur


Markmið: Undirbúningur fyrir hina árlegu og stórskemmtilegu landskeppnina sem haldin verður í Háskólabíói 13. nóvember 2021. Video frá síðustu keppni má sjá hér: (03:58:20) https://livestream.com/accounts/11153656/events/8887569/player Ný þrautabraut kemur á hverju ári og glíma nemendur með aðstoð kennara við að finna lausnir á þrautabrautinni, hönnun vélmennis, lausn raunverulegs vandamáls ásamt því að setja upp kynningarbás í anddyri Háskólabíós á keppnisdegi.


Námsgögn: LEGO Mindstorm Ev3


Námsmat virkni í tímum og vinnubrögð

Starfsnám í skóla

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn, Vorönn

Alla daga

Fyrirkomulag: Nemendur eru fyrst og fremst að aðstoða í Frístund og vinna þar undir verkstjórn forstöðumanns. Verkefnin geta verið fjölbreytt en þau felast fyrst og fremst í því að vinna með yngstu nemendum skólans, að aðstoða þau í leik og starfi.

Þeir nemendur sem vilja vera í starfsnámi innan skóla en treysta sér ekki til að vera í Frístund geta fengið að vinna undir verkstjórn skólaliða við þrif eða annað sem til fellur innan skólans.

Námsmat: Verður í formi umsagna um frammistöðu, vilja og virkni.

Nám og störf

Innanskólaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Lundarskóli


Haustönn, Vorönn


Markmið: Að nemendur kynnist betur því sem snýr að námi og starfi. Læri um þætti sem tengjast námi, starfi, áhugasviði, námstækni, skipulagi, ferilskrá, markmiðasetningu, sjálfsmynd, lífsvenjum og fleira.


Hver eru þín markmið eða hvert vilt þú stefna?

  • Get ég bætt mig í náminu?

  • Hverjir eru mínir styrk- og veikleikar?

  • Námstækni og skipulag, gæti það hjálpað þér í þínu námi?

  • Að sækja um starf, hvað þarf að gera?


Kennari: Hildur Mist, náms-og starfsráðgjafi