Hlutverk nemenda

Hlutverk nemenda er að:

fylgja reglum skólans og virða þær,

stuðla að jákvæðum skólabrag þar sem einelti þrífst ekki,

koma fram við aðra eins og þeir vilja að komið sé fram við þá,

hlusta á og virða sjónarmið annarra nemenda og starfsfólks,

sýna tillitssemi og umburðarlyndi,

láta vita ef illa gengur eða ef vanlíðan gerir vart við sig,

fylgja fyrirmælum kennara og starfsfólks,

koma vel undirbúnir til starfa,

stuðla að góðum starfs- og vinnuanda,

fylgja því námsefni sem fyrir þá er lagt,

tileinka sér góð vinnubrögð,

stunda nám sitt eftir bestu getu,

vera ábyrgir gagnvart eigin námi.