Vinnuaðferðir :
Prjón (og hekl): Nemendur læra fingraprjón, prjóna á tvo sokkaprjóna (e.t.v. hringprjón) eða kynnast prjónavefstól eða grunn í hekli. Læra að fitja upp, prjóna garðaprjón, sauma saman og ganga frá endum.
Aðalvinnuaðferðin í 4.bekk er sem sagt prjón og hekl, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda eins og til að mynda í valverkefnum.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Textílnmennt er kennd 3x í viku, í 80 mín, allt að 19 skipti..
Verkefnin eru:
Unnin eru lítil einstaklings prjónaverkefni þar sem þau velja sitt garn og prjónastykki (prjónadýr,leikföng o.s.frv.), og ef til vill taka þau einnig þátt í samvinnuverkefni ef tími og áhugi er fyrir hendi. Jafnframt ef áhugi er fyrir hendi er prjónaklúbbur er stofnaður og huggulegheit tengd honum höfð í hávegum. Nemendur eru hvattir til að prjóna einnig heima.
Valverkefni: þegar tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendum.
Pinterest “Textíl í Hvassó” ( hugmyndabanki kennara og nemenda )