Við Grunnskólann í Stykkishólmi er útikennsla bundin í töflu hjá nemendum í 1.-4. bekk. Hvern föstudag fer einn árgangur út í fjórar kennslustundir, frá 8:10-11:10. Þá er farinn leiðangur innan bæjarmarkanna; skógurinn í Nýrækt heimsóttur, farið í nálæga fjöru, skundað um bæinn okkar eða litið inn á safn svo eitthvað sé nefnt. Í þessum ferðum eru allir með nestið sitt í litlum bakpoka og skipar nestisstundin stóran sess í ferðunum okkar.