Kynning á tækjum (tölvur, spjaldtölvur).
Einföld mús- og snertiskjástýring.
Leikir sem efla samhæfingu augna og handa.
Einföld ritvinnsla (stafir, orð, myndir).
Öruggt aðgengi að netinu með aðstoð.
Öpp fyrir iPad: Drawing Pad, ABCmouse, PBS Kids Games
Vefir fyrir kennslu:
KrakkaRÚV – einfalt efni, þrautir og leikir.
Menntamálastofnun (Lestrarkennsla) – einfalt námsefni.
PBS Kids – námsleikir fyrir byrjendur.
Starfall – lestur, stærðfræði og hljóð.
Halló Heimur - https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/hallo_heimur_2/
Kynning á upplýsingatækni: Nemendur læra að þekkja og nefna helstu jaðartæki tölva (t.d. lyklaborð, mús, skjá).
Grunnfærni: Nemendur læra að kveikja og slökkva á tölvu, opna og loka forritum, og nota einföld forrit til að teikna og skrifa.
Leikni í notkun: Nemendur læra að nota tölvur til að leika sér og læra, t.d. með einföldum leikjum og fræðsluforritum.
Öryggi: Nemendur læra grunnatriði í öryggi á netinu, eins og að nota sterkt lykilorð og ekki deila persónulegum upplýsingum 1.
Ársáætlun fyrir 1. og 2. bekk ( til viðmunar )
Ágúst – Maí (skólaár)
Nemandi geti nýtt sér tölvur og stafrænar lausnir við einföld verkefni.
Nemandi geti sýnt ábyrgð og tillitsemi í notkun stafrænnar tækni.
Nemandi geti tjáð sig skapandi með einföldum stafrænni miðlun.
Nemandi þekki grunnhugtök um stafrænt umhverfi og öryggi á netinu.
1. Tölvunotkun og grunnfærni
Kynnast grunnatriðum tölvunotkunar (ræsa, slökkva, nota mús og lyklaborð).
Einföld notkun á kennsluforritum (t.d. ritvinnsla, teikniforrit).
Hafa umgengni um tölvu og búnað í lagi.
2. Stafræn samskipti
Að þekkja einföld form stafrænna samskipta.
Kynnast því hvernig hægt er að nota tæki og tól til að eiga samskipti við aðra (myndsímtöl, skilaboð með hjálp kennara).
3. Öryggi og ábyrgð
Að þekkja mikilvægi persónuverndar og hvaða upplýsingar á ekki að deila með öðrum.
Að læra að biðja um aðstoð ef eitthvað óvænt gerist í stafrænu umhverfi.
Sýna virðingu og tillitsemi í samskiptum á netinu.
4. Sköpun og miðlun
Kynnast því að búa til einföld verkefni í stafrænu formi (mynd, texta, hljóð).
Notkun á einföldum hugbúnaði til að skapa og miðla efni (t.d. Paint, Book Creator).
Símat með athugunum á virkni og verkefnum nemenda.
Munnlegar spurningar og samtöl við nemendur um námsefnið.
Einföld verkefni og verkefnamöppur þar sem nemendur safna saman verkefnum sínum yfir skólaárið.
Tölvur og spjaldtölvur
Kennsluforrit (t.d. Paint, Book Creator, Scratch Jr.)
Stafrænt efni og myndskeið til stuðnings kennslu um stafrænt öryggi og samskipti.
Kennslustundir byggðar á virkri þátttöku, leikjum og verklegri þjálfun.
Samræður og hópverkefni.
Innleiðing skapandi verkefna þar sem nemendur fá að prófa sig áfram sjálfir og í samvinnu við aðra.
Hvað erum við búinn að gera:
- Hourofcode - flappy bird ( 2. bekkur )
- Kennsluvefir - stærðfræði
- Skák kennsla í rúllu ( stigaskák hjá 2. bekk )
- Sögugerð, búa til lag úr sögunni. ( Mr. Incredibles )
- Skákkennsla 18. nóv fyrsta heimsókn í 1. bekkina.
Fórum yfir helstu atriði, stig, vægi taflmanna, fórum í gegnum söguna á skákvefnum okkar. Skoðuðum leiki þar inni. Gekk mjög vel.