Bangsaöndun

Bangsaöndun - 3-6 ára

Miðað er við að æfingin taki mínútu fyrir hvert aldursár t.d. 4 mínútur fyrir 4 ára börn


  • Nú skulið þið leggjast á bakið

  • Ég ætla að leggja bangsa á magann ykkar - þið megið skoða hann á meðan allir fá bangsa

  • Nú ætlum við að leggja bangsann neðst á magann okkar

  • Lokum augunum

  • Nú skulum við anda inn um nefið og út um munninn

  • Finnið þið hvernig bangsinn lyftist upp og niður?

  • Prófið að opna augun, rólega og sjá hvernig bangsinn lyftist upp og niður þegar þið andið

  • Einbeitum okkur að anda rólega inn um nefið og út um munninn

Whitehead, 2011, bls. 22