Innleiðing stafrænnar tækni í skólastarfi er ferli sem þróast yfir tíma. Í Grunnskólanum í Stykkishólmi hefur verið unnið markvisst að því að innleiða tæki í kennslu með það að markmiði að styðja við nám nemenda og efla stafræna hæfni þeirra.
Ferlið byggir á undirbúningi, tilraunum, þróun og stöðugu mati á því hvernig tæknin nýtist best í námi og kennslu.
Upphaf verkefnisins
Á fyrstu stigum verkefnisins var lögð áhersla á að greina stöðu tæknimála í skólanum og ræða við kennara og stjórnendur um hvernig tæknin gæti stutt betur við kennslu og nám.
Á þessu stigi var meðal annars unnið að:
greiningu á núverandi tækjakosti og tækniaðstöðu
samtali við kennara um þarfir í kennslu
skoðun á rannsóknum og reynslu annarra skóla
prófun á tækjum og hugbúnaði
Markmiðið var að skapa góðan grunn fyrir markvissa og ábyrga innleiðingu.
Staðan haustið 2023 var ansi bagaleg í skólanum. Einungis voru til staðar um 40 ipadar sem voru sirka 6-7 ára gamlir og 28 fartölvur. Með ríflega 180 nemendur gefur að skilja að þessi tækjakostur er engan vegin nægur til að standa undir þeim kröfum sem bæði eru gerðar til nemenda okkar og kennara.
Unnið var að framtíðarstefnu skólans ásamt því að skoða þær leiðir með hvaða hætti skólinn gæti nútímavæðst. Kannað var hvort foreldrar/forsjáraðilar gætu komið að mögulegri spjaldtölvuvæðingu á miðstigi skólans og var heilt yfir tekið mjög jákvætt í þá leið. Þetta er gríðarlega tímafrekt ferli og margir þættir sem þarf að skoða. Eftir því sem fleiri steinum var velt breyttust okkar hugmyndir og viðhorf um það hvernig við skyldum standa að innleiðingunni.
Tækjabúnaður er að okkar mati hluti námsgagna, þetta eru dýr tæki sem eru ekki á allri færi að kaupa og ekki næst nægjanleg yfirsýn yfir tækin ef kennarar eiga að stýra kennslu nemenda sem allir eru með eigin búnað. Mismunandi búnaður bíður líka uppá ákveðna mismunun þar sem það sitja ekki allir við sama borð og hafa ekki endilega sama aðgang að forritum sem kennara vilja nota til kennslu.
Ritvinnsla er einnig enn stór hluti af núverandi framtíð nemenda og því var ákveðið að fara þá leið að spjaldtölvuvæði 1. - 5. bekk og Chromebókavæði 6. - 10. bekk. Ipadar eru hentug lausn fyrir alls kyns námsleiki og verkefnavinnu yngri nemenda en fartölvur nauðsynlegar fyrir ritvinnslu- og verkefnavinnu eldri nemenda. Megin ástæður þess að Chromebækurnar voru valdar eru að þær eru talsvert ódýrari en Windows/Apple tölvur og þær bjóða einnig uppá að tengjast kennarastýrðu forriti þar sem hægt er að afmarka með hvaða hætti tölvurnar eru notaðar, allt eftir kennslufyrirkomulagi hvers kennara fyrir sig.
Þróunarstig
Á þessu stigi var lögð áhersla á:
þróun nýrra kennsluaðferða
samvinnu og miðlun reynslu milli kennara
fræðslu og stuðning fyrir starfsfólk
að safna reynslu og meta hvernig tækin nýtast í kennslu
Þetta stig var mikilvægt til að byggja upp þekkingu og reynslu innan skólans. Í fyrsta fasa verkefnisins voru tölvur innleiddar í 3 bekki skólans sem teknar voru í gagnið snemma árs 2024. Í kjölfarið tók skólinn upp stefnuna um að vera símalaus skóli.
Staðan í dag
Í dag eru tæki orðin hluti af daglegu skólastarfi í 6. bekkjum og notuð sem eitt af mörgum verkfærum í námi.
Nemendur nýta tæknina meðal annars til að:
vinna með upplýsingar
skapa og miðla verkefnum
vinna saman í verkefnum
þróa stafræna hæfni
Á sama tíma er lögð áhersla á jafnvægi milli stafræns náms og annarra kennsluaðferða.
Framundan er svo áframhaldandi vinna við innleiðingu tækja á yngsta stig en ætla má að innleiðing verði að fullu komin árið 2027.
Framtíðarsýn Grunnskólans í Stykkishólmi er að skapa námsumhverfi þar sem tæknin styður við skapandi, fjölbreytt og nemendamiðað nám. Tækin eru ekki markmið í sjálfu sér heldur verkfæri sem hjálpa nemendum að vinna með þekkingu, miðla hugmyndum sínum og taka virkan þátt í samfélagi nútímans.
Í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla leggur skólinn áherslu á að efla stafræna hæfni nemenda sem einn af lykilþáttum menntunar á 21. öld. Nemendur fá tækifæri til að þróa hæfni til að nýta stafræna miðla á gagnrýninn, skapandi og ábyrgan hátt.
Markmiðið er að nemendur:
læri að vinna með upplýsingar og meta áreiðanleika þeirra
nýti tæknina til sköpunar og miðlunar
vinni saman og deili hugmyndum í stafrænu umhverfi
tileinki sér ábyrga og örugga nethegðun
Þannig öðlast nemendur færni sem nýtist þeim bæði í námi, starfi og daglegu lífi.
Tæknin opnar nýjar leiðir í kennslu og námi. Með henni geta kennarar:
stutt einstaklingsmiðað nám
boðið nemendum fleiri leiðir til að sýna þekkingu sína
efla samvinnu og skapandi vinnu
tengt nám við raunveruleg verkefni og viðfangsefni
Þannig styður tæknin við kennsluhætti sem taka mið af styrkleikum og áhuga nemenda.
Í skólanum er lögð áhersla á að nemendur læri að nýta tæknina á ábyrgan og gagnrýninn hátt. Nemendur læra að:
virða reglur um netnotkun
sýna góða stafræna borgaravitund
bera ábyrgð á eigin samskiptum og miðlun á netinu
Þetta er mikilvægur hluti af menntun barna í stafrænu samfélagi.
Innleiðing tækja í skólastarfi er stöðugt þróunarferli sem byggir á samstarfi kennara, nemenda og foreldra. Skólinn leitast við að þróa starf sitt í takt við nýja þekkingu og reynslu og meta reglulega hvernig tæknin nýtist best í námi og kennslu.
Markmiðið er að skapa skólastarf þar sem tæknin styður við góðan námsárangur, skapandi hugsun og virka þátttöku nemenda í samfélagi framtíðar.