Verkefnið Fjölmenning í Fjallabyggð hefur víðtækan samfélagslegan, menningarlegan og lýðheilsulegan ávinning. Það stuðlar að aukinni samkennd og þátttöku íbúa af erlendum uppruna og eflir félagslegt, menningarlegt og efnahagslegt líf í sveitarfélaginu.
Verkefnið eykur sýnileika og þátttöku erlendra íbúa, dregur úr félagslegri einangrun og styrkir tilfinningu fyrir tilheyrslu. Kaffisamkomur, ljósmyndun og viðburðir skapa vettvang fyrir samskipti og samveru, sem eykur vellíðan og sjálfstraust.
Efnahagslegur og staðbundinn ávinningur. Verkefnið hefur jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf með því að laða gesti í Brimsali og Tjarnarborg og styrkja ímynd Fjallabyggðar sem opins og skapandi samfélags. Það skapar verkefnatengd störf og styður við staðbundna þjónustu.
Sjálfbærni og umhverfisávinningur. Lögð er áhersla á vistvæna framkvæmd – endurnýtingu sýningarefnis, (í formi rafbóka) og ábyrga notkun efnis. Með því að byggja á mannlegum samskiptum og menningarlegri þátttöku stuðlar verkefnið að sjálfbærri samfélagsþróun. Í heild stuðlar Fjölmenning í Fjallabyggð að heilbrigðara, samheldnara og fjölbreyttara samfélagi. Verkefnið hefur varanleg áhrif á menningarlíf og ímynd Fjallabyggðar og fellur að markmiðum SSNE um blómlegar byggðir, lýðheilsu, menningu og sjálfbæra þróun.