Upplýsingasíða fyrir
Tónfræðideild
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kennsla í kjarnagreinum (1-6 og hraðferð) mánudaginn 17. janúar 2022.
Leiðbeiningar fyrir nýja notendur ClassRoom
Til að komast inn á ClassRoom þarf að notast við netfang frá Tónlistarskólanum og þau enda öll á trfjarkennsla.net, þannig verður tölvupóstfang nemanda: nemandi_hjá_trfjarkennsla.net. Tilkynning kemur frá Google í tölvupósti til foreldra í þann tölvupóst er skráð hjá Tónlistarskólanum og hefur nemandinn 24 klst til að skrá sig inn frá því að pósturinn kemur. Nemandi þarf fyrst að skrá sig inn í Google kerfið í gegnum gmail.com, og eftir það geta öll samskipti farið í gegnum Classroom annað hvort í formi snjallforrits (sjá hér fyrir neðan) eða í gegnum vafra á http://classroom.google.com.
Ef nemandinn nær ekki að skrá sig inn í fyrsta skiptið á þessum 24 klst þarf að hafa samband við Tónlistarskólann til að fá endurnýjað tímabundið lykilorð. Þegar búið er að skrá sig inn í fyrsta skiptið fær nemandinn að búa til sitt eigið lykilorð. Ef nemandi gleymir lykilorði eða tölvupóstfangi er alltaf hægt að hafa samband við deildarstjóra tónfræðideildar.
Það hefur reynst flestum betur að nota snjallforritið fyrir ClassRoom sem er til fyrir bæði Apple og Android stýrikerfin.
Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem eru að snjallforritið :
Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem eru að snjallforritið :
Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem eru að nota vafra (mælum með að nota Chrome í incognito stillingu):
Tímar í kjarnagreinum
Kennslustund á grunnstigi (Kjarni 1 - 3) eru 50 mínútur að lengd. Kennslustund á miðstigi eru 70 mínútur að lengd (Kjarni 4 - 6). Kennslustund í Kjarna hraðferð er 70 mínútur að lengd þar sem farið er mjög hratt í gegnum námsefnið.
Kjarni 1
1A Mánudagar kl 14:30 Kennari: Jóhanna María
1B Þriðjudagar kl 14:30 Kennari: Gísli Jóhann
1C Miðvikudagar kl 14:30 Kennari: Jóhanna María
1D Fimmtudagar kl 14:15 Kennari: Jóna Kristín
1E Fimmtudagar kl 14:30 Kennari: Jóhanna María
1F Fimmtudagar kl 14:30 Kennari: Gísli Jóhann
1G Fimmtudagar kl 16:10 Kennari: Jóna Kristín
1H Fimmtudagar kl 17:50 Kennari: Jóhanna María
Kjarni hraðferð (1-2)
hra1A Mánudagar kl 18:00 Kennari: Jóhanna María
hra1B Miðvikudagar kl 16:30 Kennari: Jóhanna María
Kjarni 2
2A Mánudagar kl 15:30 Kennari: Jóhanna María
2B Þriðjudagar kl 14:30 Kennari: Jóhanna María
2C Miðvikudagar kl 14:30 Kennari: Gísli Jóhann
2D Fimmtudagar kl 15:05 Kennari: Jóna Kristín
Kjarni 3
3A Mánudagar kl 17:00 (söng nemendur) Kennari: Jóhanna María
3B Þriðjudagar kl 15:30 Kennari: Jóhanna María
3C Fimmtudagar kl 17:00 Kennari: Jóna Kristín
3D Fimmtudagar kl17:50 (eldri nemendur) Kennari: Jóna Kristín
Kjarni 4
4A Þriðjudagar kl 15:30 Kennari: Gísli Jóhann / Valdimar
4B Miðvikudagar kl 15:30 Kennari: Gísli Jóhann / Birgir Steinn
4C Fimmtudagar kl 15:30 Kennari: Gísli Jóhann / Jóhanna María
Kjarni 5
5A Þriðjudagar kl 17:30 (söng nemendur) Kennari: Jóhanna María
5B Miðvikudagar kl 17:50 Kennari: Gísli Jóhann / Birgir Steinn
5C Fimmtudagar kl 16:40 Kennari: Gísli Jóhann / Jóhanna María
Kjarni 6
6A Þriðjudagar kl 16:40 Kennari: Gísli Jóhann / Valdimar
6B Miðvikudagar kl 16:40 Kennari: Gísli Jóhann / Birgir Steinn
6C Fimmtudagar kl 17:50 Kennari: Gísli Jóhann
Kjarni 4 - rytmísk
Þriðjudagar kl 17:30 Kennari: Magni
Tónheyrn
TÓH1A Þriðjudagar kl 15:00 Kennari: Magni
TÓH1B Þriðjudagar kl 18:00 Kennari: Valdimar
TÓH3 Þriðjudagar kl 19:00 Kennari: Magni
Hljómfræði
HFR1 Þriðjudagar kl 16:00 Kennari: Magni
HFR3 Þriðjudagar kl 20:00 Kennari: Magni
Tónlistarsaga
TÓS502 - haustönn Þriðjudagar kl 18:00 Efni: 20.öldin Kennari: Gísli Jóhann
TÓS602 - vorönn Þriðjudagar kl 18:00 Efni: Íslensk tónlistarsaga Kennari: Gísli Jóhann
Kennsluefni í Kjarnagreinum
Hægt verður að kaupa kennsluefni í kjarnagreinum í búð Rokksafnsins í Hljómahöll frá og með 30.ágúst 2021. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir hvaða áfangi á að kaupa hvaða kennslubók.
Kjarni 1 og Kjarni 1 hraðferð: Tónfræði 1 (lesbók ásamt verkefnahefti) + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Kjarni 2: Tónfræði 1 (lesbók ásamt verkefnahefti frá fyrra ári) + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Kjarni 3: Tónfræði 2 (lesbók ásamt verkefnahefti) + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Kjarni 4:
Haustönn: Tónfræði 2 (lesbók ásamt verkefnahefti frá fyrra ári) + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Vorönn: Tónfræði 3 (lesbók ásamt verkefnahefti)
Kjarni 5: Tónfræði 3 (lesbók ásamt verkefnahefti) + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Kjarni 6: Nótnaskriftarbækur + Vinnubók í tónheyrn (Gulbók)
Tónheyrn 1: The Folk Song Sight Singing Series 1 + Rhythmic training e. Richard Starer + Nótnaskriftarbækur
Tónheyrn 3: The Folk Song Sight Singing Series 3 + Rhythmic training e. Richard Starer + Nótnaskriftarbækur
Hljómfræði 1: Hljómfræði 1 + Nótnaskriftarbækur
Hljómfræði 3: Nótnaskriftarbækur
Stofureglur í Kjarna tímum
Við sem erum í þessari stofu:
Þvoum okkur alltaf um hendurnar áður en við förum í tíma
Komum glöð og spennt að kynnast nýju efni í hvern tíma
Setjum okkur markmið í upphafi hvers tíma um hvað við ætlum að klára í tímanum og stöndum við það
Virðum kennarann og hvert annað og sýnum það í verki með því að vera kurteis og fara eftir fyrirmælum
Hikum ekki við að spyrja ef við skiljum ekki hvað kennarinn var að segja
Réttum upp hönd þegar við viljum spyrja, svara spurningum kennara eða vantar aðstoð
Erum dugleg að vinna í verkefnum og förum fyrr út ef við klárum markmið tímans áður en tímanum líkur
Þeir nemendur sem ekki taka þátt í að fylgja þessum reglum fá eina viðvörun í tímanum, en ef reglur eru brotnar í annað sinn er nemandanum vísað út og hann fær símtal heim til sín og haft er samband við umsjónarkennara.