Að gerast félagi

Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni.  

Það eru margar góðar ástæður fyrir því að ganga til liðs við Lionshreyfinguna

Samkvæmt könnun meðal Lionsfélaga er ánægja með að gera samfélaginu gagn, vera með vinum sínum í sjálfboðastarfi, og að reyna eitthvað nýtt helstu ástæður þess að fólk gerist félagar í Lions.  Þau verkefni sem veittu félögunum mesta ánægju eru:

Lionshreyfingin gefur félögum sínum tækifæri til þess að sækja ýmis námskeið tengd félagsstörfum og styrkja sig á þeim vettvangi.  Öllum verðandi stjórnarmönnum gefst kostur á því að sækja formannaskóla, ritaraskóla og gjaldkeraskóla.  Þá má nefna að verðandi svæðisstjórar sækja sinn skóla einnig.  Það má því segja að félögum í Lionshreyfingunni gefist kostur á að efla þekkingu sína og kunnáttu með þátttöku sinni í hreyfingunni. Þá rekur hreyfingin öflugt námskeið á vegum Leiðtogaskólans, þar sem gefst kostur á að vinna verkefni í hópavinnu.

Í Lionshreyfingunni eignast félagar vini og kunningja til lífstíðar og eins og sagt er, þá er maður manns gaman, enda er Lionsstarfið ekki bara skemmtileg vinna, heldur skemmta menn sér saman og eiga góðar stundir. Algengt er að fólk mæti á kynningarfund í nálægum lionsklúbbi og fái frekari kynningu á félagsskapnum og starfinu.  Í því felst engin skuldbinding um inngöngu í lionsklúbb.

Í Lions er margt í boði