1 dl kornflögur, muldar
2 dl hveiti
1 dl sykur
1 msk kókósmjöl
1/4 tsk salt
1/4 tsk matarsódi
50 g smjörlíki
50 g suðusúkkulaði, saxað
1 egg
Kveikið á ofninum og stillið á 200 gráður og blástur.
Saxið súkkulaðið smátt og myljið kornflögurnar.
Mælið öll þurrefnin, nema súkkulaðið, í skál og hrærið saman.
Myljið kalt smjörlíkið saman við, notið fingurgómana.
Hrærið söxuðu súkkulaðinu saman við.
Notið desilítramál eða bolla til að brjóta eggið í áður en þið bætið því út í skálina.
Hrærið og hnoðið deigið saman.
Hnoðið deigið á borðinu og mótið kúlur.
Raðið á plötu og bakið í 10–12 mínútur.
250 ml volgt vatn
2 msk sykur
1 msk olía
1 msk þurrger
6 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
Bakið í ca. 10 mínútur við 200°C.
Blandið saman í skál vatni, sykri, olíu og þurrgeri. Geymið í 10 mínútur.
Bætið síðan hveiti, lyftidufti og salti saman við og hnoðið vel saman.
Bútið deigið niður, búið til lengjur og raðið á bökunarplötu. Passið að hafa lengjurnar svipað stórar svo að þær bakist jafnt. Penslið yfir með smá olíu áður en sett er í ofninn.
Bakið í ca. 10 mínútur við 200° C.
Blandið saman í skál olíu og brauðstangakryddi og penslið því yfir þegar þær koma úr ofninum.
Fyrir 1
1 dl volgt vatn
1 msk. olía
1 tsk. þurrger
½ tsk. sykur
½ tsk. salt
1 ½ dl hveiti
1 dl heilhveiti
Olía, salt og krydd til að láta ofan á.
Aðferð:
1. Stillið ofninn á 200°C og blástur.
2. Mælið allt í skál og hrærið.
3. Bætið hveitinu saman við og hrærið vel saman með sleif.
4. Hnoðið með höndunum á borði þangað til deigið er alveg sprungulaust.
5. Fletjið út með höndunum í ferhyrning eða hring og látið á plötu.
6. Búið til holur í deigið með sleifarenda eða fingrunum.
7. Penslið með olíu, stráið salti og kryddi ofan á og potið aftur þannig að olían leki í holurnar.
8. Látið lyfta sér í um það bil 15 mínútur.
9. Bakið í miðjum ofni í 10–12 mínútur.
4 kjúklingabringur
1 tsk salt
1 tsk hvítur pipar
1 dl hveiti / 70 g
2 egg eða eggjahvíta
155 g kornflex
3 msk olía
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, passaðu að skera þær ekki í of litla bita, það er meiri vinna að hafa fleiri bita og þú þarft þá meira kornflex.
Blandaðu saman í skál hveiti, salti og hvítum pipar.
Settu egg í aðra skál.
Blandaðu saman muldu kornflexi og olíunni og settu á disk eða eldfast mót.
Þú byrjar svo á því að setja kjúlingabitana í skál ásamt hveitiblöndunni, veltu þessu saman. Helltu næst eggjunum út í skálina og hrærðu vel svo allir bitarnir verði blautir af eggi. Því næst er bitunum velt upp úr kornflexinu og svo raðað á bökunarpappír/ofnskúffu.
Bitarnir eru svo hitaðir við 200 gráður í 20 mínútur. Það er gott að snúa þeim eftir 10 mínútur en líka í lagi að sleppa því.
Hitið ofninn í 160°c
110 gr smjörlíki
80 gr flórsykur
1 egg
2 tsk vanilludropar
½ tsk grænn matarlitur
200 gr hveiti
½ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
Setjið í hrærivélarskál og þeytið saman:
Smjörlíki, flórsykur, egg, vanilludropa og matarlit.
Blandið svo saman við:
Hveiti, lyftiduft og salt
Kælið deigið í ísskáp í 10 mín.
Rúllið deiginu í lengju, myndið fingur eða gerið langa lengju og skerið í 10 cm búta og gerið fingur. Það er hægt að nota möndlur eða möndluflögur sem neglur.
Bakið í 15 mínútur.