8 og 9. bekkur
Markmið
Samkvæmt læsisstefnu skólans eiga nemendur í unglingadeild að lesa 4x í viku 15 mínútur í senn. Eitt þeirra hæfniviðmiða sem liggja til grundvallar í lokaeinkunn íslensku snýr að lestri: Nemandi getur valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta, unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt og miðlað til annarra.
Fyrirkomulag
Nemendur velja sér bók við hæfi og í samráði við íslenskukennara. Hér fyrir neðan má nálgast lista yfir tillögur að bókum. Fyrir miðnætti á sunnudögum í hverri viku skila nemendur inn myndbandi þar sem á að vera:
Stutt frásögn um það sem var lesið þá vikuna - hvað hefur gerst, hvaða persónur koma við sögu og fleira sem ykkur dettur í hug
Nemandi les upphátt úr bókinni í tvær mínútur. Vandið vel lesturinn.
Nauðsynlegt er að merkja myndböndin eftir vikum og sömuleiðis ALLTAF nefna í upphafi hvers myndbands hvaða vika er hverju sinni.
Hafið í huga
Utanumhald og skipulag lestursins er alfarið í ykkar höndum!
Lestrardagbækurnar gilda 10% í lokaeinkunn íslensku
Veljið bækur sem þið hafið áhuga á að lesa
Íslenskukennarar mæla með vefsíðunni Lestrarklefinn. Þar má finna ógrynni bóka sem eru flokkaðar eftir aldri og bókaflokkum.
Hér er myndband með leiðbeiningum um hvernig eigi að skila myndböndum í heimalestri í hverri viku
SKYLDUÁHORF