Skólareglur

Skólareglur G.Snb.


Markmið/tilgangur

Að auka öryggi, heilbrigði og vellíðan nemenda.

Að efla sjálfstæði, metnað og samkennd í skólasamfélaginu.


Almennt

Allt starfsfólk á að láta sig varða framkomu og hegðun nemenda og vera þeim góðar fyrirmyndir.

Við hlýðum fyrirmælum starfsfólks skólans.

Við erum á skólalóðinni á skólatíma, ekki er leyfilegt að vera á hjólum eða hjólabrettum.

Farsímar og snjallúr nemenda skulu vera í skólatöskum á skólatíma.

Allar hljóð- og myndatökur eru óheimilar nema með sérstöku leyfi kennara.


Sjálfstæði

Við berum ábyrgð á eigin hegðun og framkomu.

Við erum ábyrg fyrir því tjóni sem við kunnum að valda.


Metnaður

Við leggjum okkur fram um að gera alltaf okkar besta, sama hvert verkefnið er.

Við erum stundvís og mætum með viðeigandi gögn í skólann - sjá reglur um skólasókn.

Við göngum vel um eigur okkar og annarra.

Við temjum okkur heilbrigðar og hollar lífsvenjur. Öll meðferð og notkun tóbaks og vímuefna er óleyfileg.


Samkennd

Ofbeldi er ekki liðið.

Öllum á að líða vel og vera öruggir í skólanum.

Við sýnum kurteisi og tillitssemi í öllum samskiptum.

Við tökum afstöðu gegn einelti og látum vita ef okkur eða öðrum líður illa í skólanum.