Menning
Kynntu þér dagskrá hverrar menningarstofnunar hér að neðan með því að smella á krækjuna eða skrollaðu niður og skoðaðu hana sundurliðaða fyrir börn og fjölskyldur.
Borgarbókasafn - Árbær
Borgarbókasafn - Gerðuberg
Borgarbókasafn - Grófin
Borgarbókasafn - Kringlan
Sólheimasafn
Borgarbókasafn - Spöngin
Borgarbókasafn - Úlfarsárdalur
Alls slags kennslumyndbönd fyrir börn í forritun, tónlist, handavinnu eða um annað föndur.
Borgarsögusafn
Sunnudagur 20. febrúar kl. 13-15.00
Listrænn stjórnandi plöntuleikhússins er Lóa Björk Björnsdóttir.
Það kostar ekkert að taka þátt í smiðjunni en vegna sóttvarna er aðeins pláss fyrir 25 þátttakendur. Skráning hér
Dagana 17.-20. febrúar kl. 10-17.00
Á sýningu Sjóminjasafnsins FISKUR & FÓLK er fjallað um alls konar forvitnileg sjávardýr, skip, sardínudósir og margt fleira sem tengist hafinu og reyndar líka það sem ætti ekki að finnast þar. Hvað skildi það nú vera?
Í fjölskylduleikjum fá ungir gestir skemmtilegar þrautir til að leysa. Þær leiða krakkana um sýningu safnsins og fá þeir sem leysa þrautirnar lítil verðlaun.
Sunnudaginn 20. febrúar kl. 14-15.00
Umsjón hefur Jóhanna Guðrún Árnadóttir, verkefnisstjóri
Gestir eru hvattir til að kíkja inn í önnur hús á safninu og sérstaklega að skoða sýninguna Karólína vefari á neðri hæð Kornhússins. Sýningin fjallar um Karólínu Guðmundsdóttur sem vann geysifallegt handverk úr íslenskri ull á síðustu öld en verk hennar prýddu óteljandi heimili og stofnanir.
Dagana 17.-20. febrúar kl. 13-17.00
KÍKT Í KOFFORTIÐ er léttur leiðangur um munageymsluna Koffortið þar sem leitað er að gripum og fræðst um þá um leið.
Þá er forvitnilegt að kíkja inn í safnhúsin sem hver hafa sína sögu að segja.
KOMDU AÐ LEIKA er leikafangasýning þar sem börn mega handfjatla og leika sér með alls konar leikföng frá ýmsum tímum.
Á Ljósmyndasafninu er boðið upp á skemmtilega myndaþraut um sýninguna Augnablik af handahófi. Á sýningunni er ljósmyndum og textum teflt saman og ungir sem aldnir geta leikið sér að því að finna texta sem þeim finnst passa við myndirnar. Myndaþrautin gengur út á samveru og samvinnu fjölskyldunnar um leið og sýningin er skoðuð. Lítil verðlaun í boði fyrir þá sem taka þátt.
Ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Listasafn Reykjavíkur
Frítt er inn fyrir fullorðna í fylgd barna á sýningar safnsins í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum.
Athugið að Ásmundarsafn er lokað, en Ásmundargarður er skemmtilegur viðkomustaður og alltaf opinn.
Fimmtudagurinn 17. og föstudagurinn 18. febrúar
Kjarvalsstaðir: Prent og vinir - námskeið fyrir börn í tengslum við sýningu Birgis Andréssonar.
Prent og vinir var stofnað sem færanlegt listamannarekið prentverkstæði, en hefur nú höfuðstöðvar sínar í Laugarnesinu. Hópurinn hefur verið áberandi í listheiminum undanfarin ár.
Í vetrarleyfi grunnskólanna verður prentvél frá þeim á Kjarvalsstöðum.
8 – 10 ára börnum er boðið að koma á örnámskeið – fimmtudagsmorguninn 17. feb kl. 9 -12.00 (ath. mæting kl. 9.00) og vinna prentverk undir áhrifum af yfirlitsýningu á verkum Birgis Andréssonar: Eins langt og augað eygir.
10- 12 ára börnum er boðið að koma á samskonar örnámskeið – föstudagsmorguninn 18.feb kl. 9 – 12.00 (ath. mæting kl. 9.00)
Kennari á námskeiðunum verður Joe Keys myndlistarmaður. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg og takmarkaður fjöldi.
Skráning fyrir 8 – 10 ára fimmtudaginn 17. feb kl 9 - 12
Skráning fyrir 10 – 12 ára föstudaginn 18. feb kl 9 – 12
Hafnarhús
Ásmundargarður v/Sigtún
Ásmundargarður er góður áfangastaður og tilvalið að nota appið Reykjavik Artwalk og fara í létta fjölskylduleiðsögn um garðinn. Bæði til fyrir Google Play og App store. Frekari upplýsingar HÉR
Laugardagurinn 19. febrúar
Hafnarhús: Vísindasmiðja
Laugardagur 19. febrúar kl. 13-16.00
Listir og vísindi – sitt hvor hliðin á sama peningi
VÍSINDASMIÐJAN verður með opna listræna vísindadagskrá í samtali við sýninguna ABRAKADABRA – töfrar samtímalistar. Allir sem koma í safnið á þessum tíma geta fengið að reyna sig og taka þátt. Skráning ekki nauðsynleg, en farið verður að sóttvarnareglum varðandi fjölda hverju sinni og grímunotkun nauðsynleg.
Kjarvalsstaðir
Laugardagur 19. febrúar kl. 10-17.00
Hugmyndasmiðjan er opin fyrir fjölskyldur til að skapa saman og njóta og hið rómaða kaffihús Klambrar opið. Ókeypis fyrir fullorðna í fylgd barna á sýningar safnsins.
Ásmundargarður v/Sigtún
Laugardagur 19. febrúar
Ásmundargarður er góður áfangastaður og tilvalið að nota appið Reykjavikartwalk til að fara í létta fjölskylduleiðsögn um garðinn. Bæði til í Google Play og App store.
Frekari upplýsingar
Sunnudagurinn 20. febrúar
Kjarvalsstaðir
Laugardagur 19. febrúar Sunnudag 20. febrúar kl.10-17.00
Ókeypis fyrir fullorðna í fylgd barna á sýningar safnsins. Hugmyndasmiðjan er opin fyrir fjölskyldur til að skapa saman og njóta og hið rómaða kaffihús Klambrar opið.
Ásmundargarður v/Sigtún
Sunnudag 20. febrúar
Ásmundargarður er góður áfangastaður og tilvalið að nota appið Reykjavikartwalk til að fara í létta fjölskylduleiðsögn úr appinu um garðinn. Bæði til í Google Play og App store.