Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Tónlist, taktur og hreyfing.
Nemandi getur hreyft sig frjálst í takt við tónlist í samræmi við hreyfigetu eigin líkama,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
beitt líkamanum út frá eigin hreyfigetu í takt við tónlist
áttað sig á muninum á þrí- og fjórskiptum takti og hreyft sig í samræmi við það
byrjað dans á fyrsta slagi með stuðningi stjórnanda
sýnikennsla, herminám, bekkurinn dansar frjáls
Hreyfimynstur og spor.
Nemandi getur dansað einföld hreyfimynstur og spor í völdum dönsum, einn eða sem hluti af pari eða hópi,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
tileinkað sér valin hreyfimynstur og spor
dansað grunnspor í völdum paradönsum
sett valin hreyfimynstur og spor saman í dans í takt við tónlist
söngleikir með hreyfingum, sýnikennsla, samvinnunám, þemanám, herminám, einföld sviðlistaverkefni
Sköpun.
Nemandi getur skapað eigin dans undir leiðsögn og tengt saman hreyfingu og tónlist í dansi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
búið til einfaldar hreyfingar sem tengjast takti og tilfinningu tónlistar og sett saman í dans
nýtt sér leiðsögn við samsetningu dans
sýnt eigin dans fyrir bekkjarfélaga
sýnikennsla, þemanám, listasmiðjur, skapandi skil, áhugasviðsverkefni
Paradans.
Nemandi getur boðið upp í dans og dansað í haldi,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti:
dansað í grunnhaldi
Samskiptavenjur.
Nemandi getur hreyft sig frjálst í takt við tónlist í samræmi við hreyfigetu eigin líkama,
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
beitt líkamanum út frá eigin hreyfigetu í takt við tónlist
áttað sig á muninum á þrí- og fjórskiptum takti og hreyft sig í samræmi við það
byrjað dans á fyrsta slagi með stuðningi stjórnanda
Virðing.
Nemandi getur tekið tillit til jafningja í samstarfi og farið eftir fyrirmælum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
fylgt fyrirmælum kennara í dansverkefnum
sýnt virðingu og tillitssemi í samstarfi
sýnikennsla, herminám, þemanám, listasmiðjur
sýnikennsla, herminám, bekkurinn dansar frjálst
innlögn, sýnikennsla, umræður, dans, leikir