Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Að nemandi geti;
byrjað og stoppað dans og hreyfingu út frá tónlist og stjórnanda.
Hreyfimynstur og spor
Nemandi getur dansað einföld hreyfimynstur og spor í völdum dönsum, einn eða sem hluti af pari eða hópi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
tileinkað sér einföld hreyfimynstur og spor
dansað einföld grunnspor í völdum paradönsum
sett einföld hreyfimynstur og spor saman í dans í takt við tónlist
Sköpun
Nemandi getur skapað eigin dans undir leiðsögn og tengt saman hreyfingu og tónlist í dansi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
búið til einfaldar hreyfingar sem tengjast takti og tilfinningu tónlistar
nýtt sér leiðsögn við sköpun eigin hreyfinga
sýnt eigin dans fyrir lítinn hóp samnemenda
sýnikennsla, herminám, bekkurinn dansar frjálst
söngleikir með hreyfingum, sýnikennsla, samvinnunám, þemanám, herminám, einföld sviðlistaverkefni
sýnikennsla, þemanám, listasmiðjur, skapandi skil, áhugasviðsverkefni
Paradans.
Nemandi getur boðið upp í dans og dansað í haldi.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
boðið upp í dans með því að rétta fram hönd eða spyrja með orðum
dansað í grunnhaldi
Samskiptavenjur.
Nemandi getur hreyft sig frjálst í takt við tónlist í samræmi við hreyfigetu eigin líkama.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
leikið sér með líkamshreyfingar í takt við tónlist
hreyft sig í samræmi við þrí- og fjórskiptan takt
byrjað og stoppað dans og hreyfingu út frá tónlist og stjórnanda
Virðing.
Nemandi getur tekið tillit til jafningja í samstarfi og farið eftir fyrirmælum.
Dæmi um námsmarkmið:
Að nemandi geti;
fylgt fyrirmælum kennara í dansverkefnum
sýnt virðingu og tillitssemi í samstarfi
sýnikennsla, herminám, þemanám, listasmiðjur
sýnikennsla, herminám, bekkurinn dansar frjálst
innlögn, sýnikennsla, umræður, dans, leikir