Naglasúpa er heiti á þverfaglegu námi sem unnið er í 8.-10. bekk Nesskóla. Verkefni eru skipulögð í þemum og setja svip á starf unglingadeildarinnar.
Naglasúpa er tvær kennslustundir á viku (1 x 80 mínútur) sem festar eru í stundaskrá.
Verkefni eru mis stór. Naglasúpuverkefni getur verið allt frá því að taka bara þrjár tvöfaldar kennslustundir upp í það að ná yfir sex vikna tímabil (12 kennslustundir)
Kennt er í stofum unglingastigs, þ.e. kennslustofum á fjórðu hæð skólans, heimastofum bekkjanna. Í innlögnum er allur nemendahópurinn kallaður saman á sal skólans.
Þegar verkefnavinna nemenda er komin af stað dreifist starfið um húsnæði skólans eins og hentar hverju verkefni. Gangar geta verið notaðir, þar eru borð, stólar og sófar sem nemendum finnst gott að vinna í. Smiðjukennarar (list- og verkgreinar) bjóða hópa velkomna þegar tök eru á og verkefni þarfnast.
Lengri og/eða styttri vettvangsferðir verða hugsanlega liður í Naglasúpuverkefnum þegar fram líða stundir.
Nemendur í 8. - 10. bekk taka þátt í Naglasúpu verkefnum.
Meðal markmiða samþættingarinnar er að nemendur kynnist vel þvert á árganga, læri að vinna með ólíku fólki og taki að sér leiðtogahlutverk í ólíku samhengi.
Naglasúpuverkefni eru margvísleg og unnin eftir ólíkum leiðum. Lítil einstaklingsverkefni verða jafnvel af og til lögð fyrir en algengara er að nemendur vinni í minni eða stærri hópum.
Ef verkefni varða viðkvæm mál eða þarfnast þess sérstaklega að traust ríki milli nemenda er raðað í hópa innan árganga og jafnvel með vinavali. Í öðrum verkefnum er nemendum raðað í hópa þvert á alla árgangana og þá er eldri nemendum oft falin ákveðin ábyrgð og þeir settir í leiðtogahlutverk í vinnunni.
Naglasúpuverkefni eru skipulögð og kennd af teymi kennara á unglingastigi. Umsjónarkennarar 8.-10. bekkjar og fagkennarar í íslensku, náttúrufræði og samfélagsfræði taka þátt.
Kennarateymið tekur sameiginlegar ákvarðanir um hvaða verkefni eru unnin. Hver kennari ber ábyrgð á ákveðnu fagsviði í sínu daglega starfi og hann gætir þess að þessu fagsviði sé vel sinnt þegar valin eru hæfniviðmið og gengið frá námsmati í Naglasúpuverkefnunum.
Kennarar skiptast á að vera ábyrgðarmenn verkefna. Yfirleitt bera tveir kennarar ábyrgð á hverju verkefni og þeirra hlutverk er að halda utan um skipulag og undirbúning, deila út verkefnum til annarra kennara, sjá um innlagnir, námsmat og fréttaflutning að afloknum verkefnum.