Einkenni ævintýra
Oft sagðar til skemmtunar
Þau flakka milli landa, taka á sig ýmsar myndir og búninga eftir heimkynnum
Í ævintýrum koma gjarnan fyrir kóngur, drottning, prins, prinsessa, bóndi, bóndakona, bóndasonur og bóndadóttir, norn eða galdrakarl
Þau gerast oft í höll eða kastala, stundum líka á bóndabæ
Oftast full af furðum, kynjaverum, álögum og töfragripum
Fjalla yfirleitt um baráttu góðs og ills og eru full af andstæðum: góður/illur, ríkur/fátækur
Enda vel fyrir aðalpersónurnar
Aðalpersónurnar eru alltaf góðar
Hefjast oft á orðunum: Einu sinni var ... og enda á orðunum: Köttur úti í mýri …
Gerast oftast í ímynduðum heimi, eru óbundin stað og tíma, geyma oft galdra eða töfra, langar frásagnir sem ekki er ætlast til að menn trúi.