Söguþráður
Hvað gerðist í fyrsta klafla? Hvernig byrjar Laxdæla saga? Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar úr fyrsta kafla.
Ketill var höfðingi í Noregi þegar Haraldur hárfagri varð konungur þar
Haraldur hárfagri vildi ráða nafnbótum stórmenna
Þegar Ketill frétti þetta fór hann á þing við frændur sína og segir þeim frá stefnu Haralds og að það séu bara tveir kostir, að flýja land eða vera drepnir
Það var nýbúið að finna Ísland
Helgi og Björn vildu fara til Íslands af því að það væri hægt að nema land þar og það þyrfti ekki að kaupa það. Það væri líka mikið af hvalreka, lax í ám og góð fiskveiði í sjó
En Ketill vildi það ekki og sagði að hann færi aldrei í þá veiðistöð á gamals aldri
Ketill gifti Þórunni hyrnu og Helga magra
Ketill fór til Skotland með Unni, dóttur sína
Skotar tóku vel á móti honum því hann var frægur og með stóra ætt
Þetta var á víkingaöld
Björn og Helgi fluttu til Íslands, Björn á Snæfellsnesi og Helgi á Kjalarnesi
Margir norrænir menn fóru til Bretlands og lögðu undir sig stór landsvæði
Þorsteinn, sonur Unnar, varð konungur yfir hálfu Skotlandi, en Skotar drápu hann á katanesi á norðurodda Skotlands
Ketill var líka dáin
Unnur fann ekki annað ráð en að flýja og lét í laumi smíða skip á Katanesi
Þegar skipið var tilbúið flúði Unnur með syni Þorsteins og fleira fólk og stefndi til Íslands
Unnur fór til Orkneyjar var þar í smá stund og gifti Gró dóttur Þorsteins
Eftir það fór hún til Færeyja og gifti Ólöfu, dóttur Þorsteins
Skipið koma að Suðurlandi, að sandinum vestan við Ölfusárós, skipið brotnaði en allt fólk bjargaðist
Unnur lagði af stað með tuttugu manns til Helga á Esjubergi
Helgi bauð henni til sín með helmingin af liðinu en Unnur varð reið og sagðist ekki hafa vitað að hann væri slíkt lítilmenni
Þá fór hún í Bjarnarhöfn til Björns, sem bauð henni til sín með alla sína menn, hún þakkaði honum stórmennsku sína
Unnur var í Bjarnarhöfn fyrsta veturinn á Íslandi
Vorið eftir fór Unnur vestur í Dali og nam þar land
hún byggði bæ í Hvammi en gaf förunautum sínum land víða um Dali
Einn förunauturinn hét Kollur
Unnur gifti Koll og Þorgerði, dóttur Þorsteins og gaf þeim allan Laxárdal
Kollur varð kallaður Dala-Kollur
Vífill var þræll Unnar en hún gaf honum Vífilsdal
Þegar Unnur varð gömul og lasburða af elli kallaði hún Ólaf til sín og sagði að það væri komin tími til að hann fyndi sér konu
Síðan var fundin kona, Álfdís, fyrir Ólaf og haldin brúðkaupsveisla í Hvammi
Unnur borgaði mikið fyrir brúðkaupið og bauð tignum mönnum úr öðrum sveitum
Hún bauð líka Birni og Helga, Dala-Kolli, herði og mörgu öðru stórmenni
Unnur var orðin mjög ellimóð og ef einhver spurði um mátt henar svaraði hún reiðilega
Í brúðkaupsveislunni sagði Unnur að Ólafur fengi bæ hennar með öllu sem honum fylgdi. Unnur fór svo að sofa en sagði öllum að skemmta sér
Fólk sagði að hún væri enn virðuleg
Unnur fór venjuleg á fætur um miðjan dag og bannaði að láta vekja sig
En daginn eftir brúðkaupsveisluna svaf hún svo lengi að Ólafur lét athuga með hana. Þá sat hún dáin upp við kodda
Menn slógu saman brúðkaupsveislunni og erfidrykkju Unnar og skemmtu sér í nokkra daga
Síðasta daginn var tekið skip og það lagt í moldarhaug. Lík unnar og mikið fé og lagt í skipið og haugnum lokað
Ólafur feilan tók við búi í Hvammi, varð ríkur og mikill höfðingi, og bjó þar til dauðadags
Þegar Ólafur bjó á Hvammi verður Dala-Kollur veikur og deyr